Rafbílar Jaguar verða dýrari
- Verð á rafbílum Jaguar verði svipað og á Bentley og Porsche
- Forstjóri JLR segir að nýir rafbílar vörumerkisins muni byrja á verði yfir 17 milljónum króna
LONDON - Nýir rafbílar Jaguar, sem aðeins er rafknúnir, mun byrja á um það bil 100.000 pundum (um 17,1 milljón ISK), sagði Thierry Bollore, forstjóri Jaguar Land Rover, í viðtali við breskt blað á dögunum.
„Lúxus byrjar ekki langt frá 100.000 pundum,“ sagði Bollore við tímaritið Auto Express í viðtali.
JLR staðfesti þessi ummæli Bollore við Automotive News Europe.
I-Pace er fyrsti rafknúni bíll Jaguar.
Að verðleggja nýja bíla sína á um 100.000 pund myndi etja Jaguar gegn keppinautum eins og Bentley og Porsche, langt yfir núverandi keppni við BMW og Audi.
Bollore sagði við Auto Express að búið væri að undirbúa hönnunina fyrir úrval nýrra rafknúinna bíla Jaguar.
Hann gaf engar frekari upplýsingar um bílana. Tímaritið sagði að framboðið muni samanstanda af tveimur „crossover“ og einni sportlegri tveggja dyra gerð án þess að geta heimilda fyrir upplýsingar sínar.
„Sjáðu Range Rover,“ sagði Bollore við tímaritið. „Sá er á verði sem virkar og skilar hagnaði en við höfum ekki enn náð þakinu. Verðið er jú óvenjulegt og við höfum magnið“.
Bollore sagði að Jaguar I-Pace rafknúni crossover-bíllinn yrði eini núverandi bíll vörumerkisins til að halda áfram eftir 2025, en að hann væri staðsettur á annan hátt en nýju gerðirnar.
Vilja verða „einstakir“
Bollore sagði að það hefði skaðað Jaguar vörumerkið að reyna að keppa við þýsku úrvalsmerkin BMW og Audi.
Hönnunarstjóri JLR, Gerry McGovern, hefur áður talað um nauðsyn þess að fá Jaguar aftur til þeirra tíma þegar hann var „afrit af engu“ og vísaði til E-gerðar sportbíla Jaguar frá sjöunda áratugnum sem dæmi.
Bollore, fyrrverandi forstjóri Renault og hægri hönd Carlos Ghosn, hefur gjörbreytt stefnu JLR síðan hann tók við af Ralf Speth í september síðastliðnum. Fyrirtækið hefur sagt að það vilji ekki lengur elta Audi, BMW og Mercedes og hefur horfið frá markmiði sínu að ná 1 milljón bílasölu árlega.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Land Rover er að undirbúa glænýja útgáfu af einni mest seldu gerð sinni - Range Rover Sport. Sport-útgáfan selst betur en Range Rover í fullri stærð...
Ferrari neitar að kalla fyrsta fjögurra dyra bílinn sinn, Purosangue, sportjeppa eða crossover, þrátt fyrir hærri stöðu og fjórhjóladrif...
Vorið er að koma hjá þeim í Ameríku og það má meðal annars greina á því að Jeep er að senda frá sér nýjar „sumarútgáfur“...