BL býður heimsendingu á reynsluakstursbílum

BL hefur nú tekið upp þá nýbreytni að bjóða viðskiptavinum sem kjósa að fá sendan nýjan reynsluakstursbíl heim að dyrum í stað þess að gera sér ferð í sýningarsali fyrirtækisins við Sævarhöfða, Hestháls eða Kauptún. Lánstíminn er eins og venja er varðandi reynsluakstur nýrra bíla og ákveðinn í samráði við viðkomandi söluráðgjafa hverju sinni.

image

Auk þess sem BL býður upp á heimsendingu á reynsluakstursbílum býðst viðskiptavinum einnig að fá söluskoðun og verðmat á núverandi heimilisbíl meðan á reynsluakstrinum stendur.

Heimsendingarþjónustan hefur engin áhrif á starfsemi í sýningarsölum BL sem opnir eru samkvæmt venju virka daga og á laugardögum. Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag heimsendingarþjónustunnar eru að finna á vefsíðu fyrirtækisins, bl.is.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is