INEOS, framleiðandi Grenadier-jeppans, teflir nú fram ökumanni úr Formúlu 1 í auglýsingaherferð. Finninn Valtteri Bottas, sem ekur fyrir Mercedes, sést í splunkunýju myndbandi aka eftir fáförnum vegarslóða á INEOS Grenadier-jeppanum.
Það verður að segjast eins og er að það er frumlegt að fá Formúluökumann til að auglýsa jeppann og sannarlega er óvenjulegt að sjá Bottas aka með gassagangi í drullu og yfir lækjarsprænur. Í það minnsta fyrir þau okkar sem erum vön að sjá hann í allt öðru umhverfi!
Aðrar umfjallanir
Enn einn kaflinn er að opnast í 72 ára sögu F-Seríu pallbílanna frá Ford Motor Co., bíllinn sem hefur gefið þessum framleiðanda mestan hagnað...
Porsche mun brátt stækka Taycan línuna með nýju, hagnýtari afbrigði Cross Turismo, núna sem stationbíll. Nýi rafbíllinn verður frumsýndur í næsta mánuði...
Allir sem eldri eru muna vel eftir Datsun-vörumerkinu sem Ingvar Helgason seldi hér á árum áður, en nafnið datt út árið 1983 og Nissan nafnið tekið upp í staðinn. Til stóð að endurlífga vörumerkið en það mistókst og nú kveður Datsun í hinsta sinn.
Kia Soul, hinn glæsilegi sigurvegari að mati margra vegna sérstæðrar hönnunar á árunum upp úr aldmótunum 2000, hefur verið fullkomlega endurhannaður sem 2020-árgerð.