- Hann verður frumsýndur árið 2022
Volkswagen er smám saman að opinbera frekari upplýsingar um framleiðsluútgáfu ID.Buzz hugmyndabílsins. Við sáum bílinn sem mjög dulbúna sjálfakandi skutlu í september 2021 og nýjasta myndin sem þýski bílaframleiðandinn sendi frá sér sýnir rafmagnsbílinn í mun minni felulitum. Reyndar eru felulitirnir á bílnum í dag alveg í takt við myndir á plötuumslögunum á „hippatímanum“.
Sumar vísbendingar um útlit hafa hins vegar breyst: neðri hluti framstuðarans hefur verið endurhannaður, framljósin sem voru með framúrstefnulegu útliti hafa orðið að víkja fyrir raunsærri einingum og baklýst Volkswagen-merkið er horfið af framendanum. Bíllinn fær líka spegla og hurðarhúna.
Á heildina litið lítur út fyrir að ekki hafi mikið tapast í umskiptum frá hugmyndabíl yfir í framleiðslugerð en við bíðum þar til við sjáum Buzz í endanlegri gerð til að kveða upp endanlegan dóm. Og eins og hugmyndin mun framleiðslulíkanið koma með rafdrifinni aflrás. Hann er byggður á MEB grunni VW, sem er undirstaða vaxandi fjölda rafbíla; þar á meðal ID.4 crossover og nýlega kynntum ID.5, svo Volkswagen mun geta boðið afbrigði afturdrifs og fjórhjóladrifs. Útfærslur með stuttu og löngu hjólhafi verða fáanlegar á heimsvísu, en í fyrri frétt er fullyrt að aðeins sú síðarnefnda verði boðin í Bandaríkjunum, þar sem bíllinn verður markaðssettur sem glæsilegur ævintýrabíll.
Hér má sjá gamla upphaflega „rúgbrauðið“ frá VW og hægra megin er hugmyndin að ID.Buzz sem var sýnd í Genf árið 2017.
Aðrar umfjallanir
Þessir bílar voru kallaðir brunabílar. Bílarnir sem komu hingað höfðu þó ekki brunnið og það var engin brunalykt inni í þeim. Datsun bílarnir voru með lakkskemmdum...
Riviera er bein tenging við þá frönsku og þýðir strandlengja á okkar ástkæra og ylhýra. Árið er 1965 og Samband íslenskra samvinnufélaga er með umboð fyrir Buick Riviera...
Við könnumst flest við „jetski“ en „jetcar“ er eitthvað sem maður tengir helst við eyðimerkurakstur þotubíla sem reyna að slá hraðamet. Í þessu tilviki er þetta bíll sem þeysist eftir haffletinum. Sportbíll meira að segja.
Það var greinilegt að það höfðu margir áhuga á því að skoða hvað væri í boði þegar ÍSBAND umboðsaðili Jeep og RAM...