Nýr 2021 Dacia Spring kynntur sem ódýrasti rafbíll Evrópu

    • Samkvæmt fréttum er hægt að byrja panta bílinn vorið 2021 – sem mun kosta undir 3,6 milljónum króna á markaði í Evrópu

Þetta er Dacia Spring. Þegar opnað verður fyrir pantanir vorið 2021 stefnir í að hann verði ódýrasti nýi rafbíllinn sem hægt er að kaupa í Evrópu.

image

Dacia Spring tekur greinilega sterklega á móti keppinautum í hópi rafbíla á verði sem verður vel fyrir neðan 3,6 milljónir króna á markaði í Evrópu.

Þrátt fyrir jeppaútlitið eru hlutföll Spring viðeigandi fyrir akstur í þéttbýli: 3.734mm að lengd og 1.622 mm á breidd, hann er aðeins lengri og breiðari en Volkswagen up!

image
image

Dacia segir mikið rými sé í Spring, þar sem jafnvel aftursætin séu með gott pláss fyrir tvo fullorðna. Hanskahólfið, hurðarvasarnir og miðlægur geymslukassi eru með 23,1 lítra geymslupláss fyrir farþega í framsæti, með frekari hurðageymslum að aftan. Spring er með 300 lítra farangursgeymslu - vel yfir meðallagi fyrir borgarbílaflokkinn.

image

Mælaborðið kemur frá Renault Kwid. Það er bláar áherslur á hurðunum og loftræstiopum, en valfrjálst sjö tommu margmiðlunarkerfi með snertiskjá, fáanlegt með bakkmyndavél, Apple CarPlay og Android Auto, er fyrir neðan loftop í miðju.

image
image

Meðal búnaðar með aukakostnaði eru loftkæling, rafdrifnir speglar og varahjól í fullri stærð, en alhliða rafstýrðir gluggar, samlæsing og 3,5 tommu stafrænn skjár á milli mælanna eru allt staðalbúnaður.

image

Dacia hefur búið Spring með 43 hestafla rafmótor með 125 Nm togi. Hann er paraður við 26,8kWh rafhlöðu, sem samkvæmt opinberum WLTP prófunum gerir ráð fyrir um 225 k akstursviði á einni hleðslu - þó að þetta gæti aukist í 290 km aksturssvið í þeirri tegund þéttbýlisaksturs sem bíllinn er hannaður fyrir. Engar hröðunartölur hafa verið gefnar út en Dacia segir að hámarkshraði sé 125 km/klst..

image

Beygjuradíus 4,8 metrar er aðeins 20 cm meiri en Honda e og ætti að tryggja að það sé mjög auðvelt að leggja bílnum.

image

Spring mun bjóða upp á jafnstraumshleðslu (DC) sem valkost - 30kW hleðslutæki fyllir á rafhlöðuna í 80 prósent á innan við klukkustund. 7.4kW veggkassi fyllir að fullu rafhlöðu Spring á fimm klukkustundum, 3,7kW nær því sama á 8 og hálfri klst og það tekur 14 klukkustundir að fylla í gegnum venjulega heimilisinnstungu.

image

Dacia mun einnig bjóða upp á snjallsímaforrit sem gerir notendum kleift að fylgjast með hleðslustöðu frá farsímum sínum, staðsetja bílinn í rauntíma og forhita eða kæla bílinn í þeim bílum sem búnir eru með loftkælingu.

(frétt á Auto Express – myndir Dacia)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is