Lewis Hamilton var heldur betur maður helgarinnar í Formúla 1. Keppnin fór fram í São Paulo í Brasilíu og gekk ýmislegt á. Nú virðast ný gögn komin fram um atvik þegar Hamilton (Mercedes-AMG Petronas) reyndi að fara framúr Max Verstappen (Red Bull) á 48. hring keppninnar. Mercedes hefur óskað eftir rannsókn á atvikinu.
Atvik í uppsiglingu í 4. beygju á 48. hring. Skjáskot/YouTube
Rannsókn takk
Í tilkynningu frá Mercedes, sem birt var í dag, kemur fram að liðið hafi formlega óskað eftir að atvikið, sem átti sér stað í 4. beygju 48. hrings, verði endurskoðað í ljósi nýrra gagna sem gætu varpað nýju ljósi á atvikið.
Skjáskot/Twitter/@MercedesAMGF1
Í umræddri beygju ætlaði Hamilton framúr Verstappen en það tókst ekki og nánast snertust bílar þeirra, eða þannig leit það út í sjónvarpstækinu hér í Hafnarfirðinum.
Eru margir á því að þarna hafi Verstappen vísvitandi leikið ljótan leik til að hindra framúraksturinn og hafa miklar umræður spunnist um það. Var hann á gráu svæði fyrir eins og fram kemur m.a. hér .
Skjáskot/Twitter/@sjbrigante
Hamilton náði forystunni á og „stakk“ Verstappen af á 59. hring og sigraði. Nú er stóra spurningin sú hvort Verstappen og Red Bull hafi brotið reglur o.s.frv.
Baulað á ökumann rauða nautsins
Ekki eru sérlega margar vikur síðan Max Verstappen var valinn vinsælasti keppandi Formúlu 1 en það fór lítið fyrir þeim „vinsældum“ eftir keppni sunnudagsins í Brasilíu. Þegar Red Bull karlinn hann Verstappen steig upp á verðlaunapallinn og tók við bikarnum fyrir annað sætið var hreinlega baulað á hann.
Aðrar umfjallanir
Elgsprófið hefur enn og aftur verið í umræðunni að undanförnu. Ræðum aðeins um það...
Á jóladag 1878 fæddist drengur í svissneska bænum La Chaux-de-Fonds í Jura-fjöllum sem átti að breyta heimi bílsins að eilífu...
Porsche hefur hleypt af stokkunum nýrri sérútgáfu af Boxster til að fagna silfurafmæli opna sportbílsins. Hann er kallaður, frekar óvænt, „Boxster 25 Years“
Það er nú ekki á hverjum degi sem peningaflutningabíll tekur upp á því að „opna sig“ fyrir almenningi. Það gerðist hins vegar í gær þegar bryndreki mikill opnaðist að aftanverðu á I5 hraðbrautinni í San Diego.