- Polestar 2, hágæða rafbíl með afburða aksturseiginleika, verður hægt að panta á www.polestar.com/is frá og með 25. nóvember næstkomandi
- Brimborg er opinber umboðsaðili fyrir Polestar rafbíla á Íslandi
- Polestar 2 Long range Dual motor kostar frá 6.750.000 kr.
- Fyrsti Polestar Space sýningarsalurinn opnar 25. nóvember í Reykjavík
![image](https://img.bilaskra.is/images/1637095208_6199878317229659013_4669808532388633.jpg)
Polestar, sænskur framleiðandi hágæða rafbíla með afburða aksturseiginleika, hefur hafið sölu bíla sinna á Íslandi með Polestar 2 rafbílnum.
Polestar hefur valið Brimborg, sem er einn fremsti sölu- og dreifingaraðili bíla á landinu, til að vera umboðsaðili sinn á Íslandi.
Nils Mösko, forstöðumaður stefnumótunar og viðskiptaþróunar hjá Polestar, segir: „Við hlökkum til að koma með Polestar til Íslands sem er í fararbroddi í heiminum þegar kemur að grænni orku.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1637095209_5878248995446073270_4669809487798947.jpg)
„Ég trúi því að sérhæft, hágæða, rafbílamerki á borð við Polestar sem státar af afburða aksturseiginleikum muni hrista rækilega upp í bílamarkaðnum og leggjast af krafti á árarnar með okkur Íslendingum við að ná metnaðarfullu markmiði Íslands um að verða fyrsta jarðefnaeldsneytislausa landið í heiminum árið 2050.
„Við hjá Brimborg erum eðlilega mjög spennt fyrir því að vera orðin opinber umboðsaðili Polestar á Íslandi, “ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.
„Við bíðum þess með eftirvæntingu að kynna Polestar upplifunina fyrir neytendum og það er enginn vafi á því að bíll á borð við Polestar 2 mun festa sig í sessi sem leiðandi á markaði hágæða rafbíla.“
Polestar netkaup og Polestar Space sýningarsalur
Polestar rafbílar eru keyptir á www.polestar.com/is í gegnum einfalt og fullkomlega stafrænt ferli sem stutt er við með sölustöðum víða um heim sem ganga undir nöfnunum Polestar Space og Polestar Destination.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1637095211_3438430504382055427_4669810994307802.jpg)
Þessir sérhönnuðu sölustaðir skapa neytendum einstaka upplifun af vörumerkinu og gera þeim kleift að eiga þægileg samskipti við Polestar sérfræðinga til að kynna sér bílana í þaula, þar á meðal með reynsluakstri. Polestar Space sýningarsalur opnar í Reykjavík hjá Brimborg þann 25. nóvember næstkomandi en stærri, varanlegur, Polestar Destination sýningarsalur opnar í Brimborg á fyrsta fjórðungi ársins 2022.
Polestar 2
Polestar 2 er framúrstefnulega hannaður og býður upp á einstaka akstursupplifun í flokki hágæða rafbíla með vegan innréttingu sem staðalbúnað, sjálfbærniáherslu í öllu efnisvali, leiðandi tækni og notendavæna akstursupplifun.
„Polestar 2 er mjög aðlaðandi og kraftmikill bíll sem státar af framúrstefnulegri og nútímalegri hönnun sem tekið er eftir og viðskiptavinir okkar eru hæstánægðir,“ segir Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar. „Hann býr yfir fullkominni samsetningu eiginleika: rafknúinn, sjálfbær, stafrænn, glæsilegur með framúrskarandi aksturseiginleika – allt það besta sem til er.“
Polestar 2 var fyrsti bíllinn í heiminum sem kom á markað með upplýsinga- og afþreyingarkerfi frá Android með innbyggðum Google-eiginleikum.
Náttúruleg raddstýring ásamt 11 tommu snertiskjá hleypa lífi í þetta nýja viðmót.
Stöðug nettenging tryggir einnig að smáforritin eru ávallt uppfærð, sem og bíllinn sjálfur. Polestar notar þráðlausar uppfærslur (OTA) til reglulegra uppfærslna á hugbúnaði bílsins og til uppfærslu á nýjum búnaði, og sér þannig til þess að Polestar 2 sé alltaf eins og glænýr bíll.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1637095212_4393480924632076366_4669812323376104.jpg)
Polestar 2 verður í boði á Íslandi með stóra 78 kWh drifrafhlöðu og tvo rafmótora sem skapar einstakt fjórhjóladrifsgrip með heildarafköstum sem nema 300 kW / 408 hestöfl og 660 Nm togi.
Auk ríkulegs staðalbúnaðar er Pilot pakki í boði sem inniheldur háþróaða akstursstuðningstækni og uppfærða innilýsingu ásamt mörgu öðru.
Performance pakkinn sem inniheldur Brembo-hemla, stillanlega Öhlins-dempara, 20 tommu þrykktar álfelgur og einkennandi „Swedish Gold“ hönnunaráherslur, er í boði sem aukabúnaður og hefur akstursupplifunina upp á hærra svið.
Um Polestar
Sænska fyrirtækið Polestar var stofnað sem nýr og sjálfstæður framleiðandi hágæða rafbíla með afburða aksturseiginleika árið 2017. Það var stofnað af Volvo Cars og Geely Holding og nýtur tæknilegrar og verkfræðilegrar samvirkni við Volvo Cars og ávinnings af verulegri stærðarhagkvæmni gegnum tengsl sín við Volvo.
Um þessar mundir eru Polestar-bílar framleiddir í tveimur verksmiðjum í Kína, en frekari framleiðsla er fyrirhuguð í Bandaríkjunum.
Í september 2021 tilkynnti Polestar að fyrirtækið hygðist skrá sig sem opinbert hlutafélag á Nasdaq með samningi við Gores Guggenheim, Inc. um sameiningu fyrirtækja. Allar upplýsingar um endanlega útgáfu samningsins er að finna hér.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1637095207_4650072509362510174_4669806955897652.jpg)
Polestar 2, hágæða rafbíll með afburða aksturseiginleika, er fyrsti fjöldaframleiddi rafbíll fyrirtækisins.
Á Íslandi verður Polestar 2 í boði með tveimur rafmótorum, stærri 78 kWh drifrafhlöðu og allt að 300 kW / 408 hestöflum og 660 Nm togi.
Í framtíðinni er stefnt að því að bæta Polestar 3, hágæða rafmagnsjeppa með afburða aksturseiginleikum við línuna, sem og hugmyndabílnum Precept sem kom út árið 2020 og er í þróun fyrir framtíðarframleiðslu. Precept endurspeglar framtíðarsýn vörumerkisins hvað varðar sjálfbærni, stafræna tækni og hönnun.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443853_3078841665490877119_5275884026000.jpg)
Sjö keppinautar eru komnir á lista sem mögulegir sigurvegarar í val á Bíl ársins í Evrópu 2019, eftir forval meðal 60 dómnefndarmanna.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443686_3875031219747804227_5108691171000.jpg)
-Segjast vera búnir að tryggja sér rafhlöður í þessa framleiðslu
![](https://img.bilaskra.is/images/1622194807_1944343992786386497_4935070819778589.jpg)
Peugeot fólks- og sendibílar hafa aldrei notið jafn mikilla vinsælda á Íslandi hvorki fyrr né síðar og markaðshlutdeild aldrei verið hærri og er...
![](https://img.bilaskra.is/images/1622828411_7392791142594419101_5568675540612704.jpg)
Mazda fagnar 15 árum hjá Brimborg með veglegum afmælistilboðum til 30. júní. Mazda bílar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi og eru þeir í sérflokki...