Hugmyndabíll á sportjeppagrunni er sýnishorn af framtíðinni: Framtíð sjálfkeyrandi bíla þar sem stjórntæki ökumanns eru nánast falin.
Hugmyndabíllinn Hyundai Seven sýnir eitt og annað sem vörumerkið gæti komið með í þriggja sætaraða rafmagns-crossover árið 2024: Bíll með innréttingu sem líkist setustofu, ofurhraðhleðslu og markvissri drægni sem er yfir 483 km.
Þegar bíllinn var kynntur á bílasýningunni í Los Angeles lagði Hyundai sérstaka áherslu á sveigjanleika hönnunar sem er möguleg með E-GMP rafbílagrunninum.
Vélarhlíf Hyundai Seven er með lágum framenda. Straumlínulöguð þaklína og langt hjólhaf er fráhvarf frá sportjeppum knúnum brunahreyflum.
„Seven varpar upp loftaflfræðilega hreinni mynd sem er ósjálfrátt frábrugðin dæmigerðum sportjeppa,“ sagði Hyundai í fréttatilkynningu. „Lág frambrún húddsins, straumlínulaga þaklína og lengt hjólhaf sendir skýr skilaboð um fráhvarf frá hefðbundnum sportjeppum sem knúnir eru af brunahreyflum.“
Framtíðarhönnunin nær einnig til innréttingarinnar
„Flatt gólfið gerir Hyundai Motor kleift að kanna valkosti við hefðbundna sætaskipan sem byggir á röðum, sem skapar gott innra skipulag,“ sagði framleiðandinn. „Hurðirnar á millibita bjóða upp á glæsilegan inngang sem býður farþega velkomna inn í áður óþekkt rými í bíl.“
Eiginleikar sjálfkeyrandi bíls
Hugmyndin gefur einnig mynd af sjálfkeyrandi bílum framtíðar og möguleikanum á að fela stjórntæki ökumanns og búa til innréttingu í setustofustíl, með snúningsstólum og sveigðum afturbekk.
Ioniq 7 verður þriðja Ioniq undirmerki EV á eftir Ioniq 5 minni crossover á þessu ári og Ioniq 6 millistærðarbíl árið 2023, samkvæmt tímalínu sem bílaframleiðandinn hefur kynnt.
Sérstæður afturendi á nýja hugmyndabílnum
Hyundai Seven gæti gefið til kynna hvað er væntanlegt í Ioniq 7.
„Í raunverulegum aðstæðum með 350 kW hleðslutæki er Seven fær um að hlaða frá 10 prósentum til 80 prósenta á um 20 mínútum,“ sagði fyrirtækið. „Hugmyndabíllinn er einnig hannaður til að ná yfir 480 km. drægni.“
Ioniq 5 er einnig á sýningunni í Los Angeles. Hann er nú þegar til sölu á sumum mörkuðum og ætti að rata til bandarískra umboða í fyrir lok ársins.
Enginn miðjubiti á milli hurða tryggir frábært aðgengi að „setustofunni“ í nýja hugmyndabílnum.
Nýta sér tæknina
Hyundai vill nýta rafbílatækni sína til að ná aukinni markaðshlutdeild. Líklegt er að 800 volta rafhlöðuarkitektúr Hyundai Motor Group sé meðal hraðvirkustu hleðslukerfa markaðarins.
„Seven dregur upp mynd af skapandi sýn Hyundai og háþróaða tækni fyrir framtíð rafrænna samgangna,“ sagði Jose Muñoz, forstjóri Hyundai Motor North America. „Frumlegt innra rými, vistvæna aflrásin og háþróaða öryggis- og þægindatæknin sýna spennandi framtíð fyrir viðskiptavini Hyundai.“
(Frétt á Automotive News Europe – myndir Hyundai)
Aðrar umfjallanir
Ronnie Corbett, skoski leikarinn lágvaxni sem margir muna eftir úr Bond-myndinni Casino Royale sem og úr ýmsum breskum skemmtiþáttum, lék í mjög frægri Ford Escort auglýsingu árið 1969.
Það getur verið erfitt að aka með opnar dyr á bílnum. Sérstaklega á mikilli ferð; t.d. í ralli. Það virðiðst þó hafa gefið ökumanninum Henk Lategan byr undir báða vængi því þannig ók hann til sigurs í dag.
Hér á Spáni eru fornbílar og glæsivagnar mjög í hávegum hafðir og starfræktir eru bílaklúbbar þar sem eigendur slíkar bíla hittast reglulega, sýna sig og sýna bíla...
Átt þú of fínan bíl?Og vilt ekki að allir haldi að þú sért einhver „uppi“? Þá eru límmiðar málið. Bílalímmiðar eru kjörnir til að koma í veg fyrir að fólk öfundist út í mann vegna fína bílsins. Hér eru nokkur dæmi um límmiða sem gefa einfaldlega til kynna að manni sé nú aldeilis sama um dýra bílgarminn.