Manstu eftir Núma? Það er tilvalið að rifja aðeins upp þann karakter, til dæmis bara af því að það er þriðjudagur.
Er mörgum minnisstætt bílaatriðið úr Löggulífi frá árinu 1985 enda var mikill hasar og hamagangur í því atriði og ýmislegt sem gerir það nánast ódauðlegt, að mati undirritaðrar.
Fleiri íslenskar kvikmyndir voru nefndar í umræðuþræði á Facebook: Perlur og svín, Sódóma Reykjavík og Foxtrot. En eru fleiri bílaatriði í íslenskum kvikmyndum? Alveg örugglega! Það er hins vegar ekki hlaupið að því að nálgast myndefni.
Á meðan við veltum þessu fyrir okkur er við hæfi að taka Núma til skoðunar. Þetta er karakter sem Örn Árnason lék í Spaugstofunni á síðustu öld. Er nokkuð víst að skapari Núma sé Örn sjálfur.
Þó svo að Númi tali ekki í atriðunum má með sanni segja að myndbandið tali sínu máli. „Númi kaupir bíl“ er hressandi þó svo að myndgæðin séu ekki þau bestu í heimi.
[Áður birt í nóvember 2021]
Fleira í svipuðum dúr:
Aðrar umfjallanir
Tesla er að skipta yfir i nýtt kerfi sem er kallað “Tesla Vision” sem notast við myndavélar í Model 3 og Y en afhending fyrstu bílanna hefst í maí...
25 ára gamall fékk hann heldur betur að kynnast þeim viðbjóði sem einelti er. Kanadamaðurinn Nicholas Latifi hefur síðustu tvö árin notið tilverunnar sem ökumaður í Formúlu 1. Þar til fyrir tíu dögum. Þá breyttist allt.
Nýlega uppfærður Lexus RX crossover af árgerð 2020 hefur hlotið „Top Safety Pick“-verðlaunin frá IIHS - öryggisstofnun Bandaríkjanna fyrir öryggi á þjóðvegum...
Heimsmetin eiga hug manns allan þessa dagana. Þá daga sem maður slær þau ekki sjálfur er gott að skoða heimsmet annarra. Í gær var það lengsti bíll í heimi, sem sló eigið met, en í dag eru það önnur bílatengd met og jafnvel heimsmet.