Tesla bílar tapa toppeinkunn
Consumer Reports, National Highway Traffic Safety Administration og Insurance Institute for Highway Safety eru búin eða ætla að lækka einkunn eða stöðu Tesla Model 3 og Model Y varðandi öryggi segir í frétt Autoblog.com og fleiri miðlum.
Til að fá toppeinkunn varðandi öryggi þarf að vera rafmagns eða tölvu öryggiskerfi í bíl.
Tesla er að skipta yfir i nýtt kerfi sem er kallað “Tesla Vision” sem notast við myndavélar í Model 3 og Y en afhending fyrstu bílanna hefst í maí.
Tesla notar líka sónar (hljóðtækni) skynjara sem hafa stutt fjarlægðarsvið.
Átta myndavéla útsýniskerfið virkar betur en bestu ökumenn og er skref í átt að sjálfkeyrandi bílum sem Tesla stefnir að segir Elon Musk.
Flest önnur fyrirtæki sem eru að prófa sig áfram með sjálfkeyrandi bíla nota lidar skynjara.
Að auki hafa Teslur með kveikt á Autopilot ekið á kyrrstæða lögreglu- og slökkviliðsbíla sem voru með blikkandi forgangsljós.
NHTSA, sem gegnir hliðstæðu hlutverki og Samgöngustofa, hefur kannað 29 atvik þar sem Teslur koma við sögu, en hefur ekki gripið til neinna aðgerða varðandi Autopilot. National Transportation Safety Board (líka með svipað hlutverk og Samgöngustofa) hefur mælt með því að NHTSA og Tesla takmarki notkun Autopilot við vegi þar sem hægt er að nota kerfið á öruggan hátt og að Tesla setji betri búnað í bílana sem tryggir að ökumaðurinn fylgist með því sem er að gerast.
Á heimasíðu Tesla er tekið fram að sumir bílar gætu verið afhentir með einhver öryggisatriði sem hafa verið gerð óvirk eða virkni þeirra takmörkuð tímabundið.
Elon Musk hefur verið gagnrýndur af CR og öðrum fyrir að kalla kerfin sín „Autopilot“ sem gefur í skyn að bíllinn geti ekið sér sjálfur og “Full Self-Driving,” þó bílarnir geti ekki ekið án aðkomu ökumanns.
Aðrar umfjallanir
Þó að tónlistarkonan Dolly Parton hafi ekki sungið sitt síðasta þá hefur hún lagt rútunni sem hún hefur notað á tónleikaferðalögum síðastliðin 13 ár. Nú geta áhugasamir gist í rútunni og fundið fyrir nærveru Dolly Parton þó svo að hún sé nú ekki í rútunni sjálf.
VW Tiguan kemur með nýtt útlit byggt á Golf á árinu 2022...
Þegar sölutölur nýrra bíla eru skoðaðar núna að loknum fyrsta mánuði ársins má sjá að sala á nýjum bílum fer hægt af stað, miðað við sama tímabil í fyrra, árið 2020...
Smekkurinn er misjafn eins og mannfólkið. Spurning hvernig það myndi henta okkur hér á Íslandi að klæða bílana okkar í ullarpeysur til