Fyrstu kaupendur fá rafdrifna Hummer-pallbílinn strax í desember

DETROIT - General Motors sagði að afhending á GMC Hummer EV pallbíl til viðskiptavina hæfist í næsta mánuði.

Duncan Aldred, varaforseti Buick og GMC á heimsvísu, sagði á þriðjudag að Hummer „Edition 1“ sem kostar 112.595 dollara (að meðtöldum sendingarkostnaði), sem samsvarar um 14,8 milljónum króna - eina útgáfan sem er fáanleg fyrir fyrsta árið - mun hafa 529 km drægni, draga allt að 3.400 kg og bera allt að 590 kg. Hann neitaði að gefa upp hversu margar pantanir vörumerkið hefur bókað eða hversu margir Edition 1 pallbílar verða framleiddir.

„Þetta er hraðasta prógramm sem GM hefur gert frá því að bíllinn var hugmynd, í það að þróa bíl og koma honum í hendur viðskiptavinarins.“

Hummer er fyrsta rafknúna farartæki GM sem smíðað er á eigin Ultium rafhlöðugrunni. Ódýrari búnaðargerðir á pallbílnum, sem og Hummer EV jepplingurinn, eiga að koma árið 2022 og 2023.

image

Joe Biden forseti fór í bíltúr í rafdrifna Hummer pallbílnum í Detroit í síðustu viku.

Forsetaheimsóknin margfaldaði söluna

Hummer pallbíllinn fékk mikla viðurkenningu (og auglýsingu) í síðustu viku þegar Joe Biden forseti heimsótti Factory Zero GM og ók pallbílnum og kallaði hann „heilmikið farartæki“.

Aldred sagði að GMC hafi fengið sjö sinnum fleiri pantanir þann dag en venjulega og að heimsóknum á vefsíðu þess hafi fjölgað um 230 prósent.

Heimsókn Biden hjálpaði til við að gera nóvember að besta mánuðinum fyrir bókanir fyrir utan kynningarmánuðina á Hummer pallbílnum og jeppanum, sagði Aldred. Hann sagði að GM hefði skráð um 125.000 fyrirspurnir um pallbílinn og að meirihluti þeirra hafi lagt fyrir pantanir sem krefjast endurgreiðanlegrar 100 dollara innborgunar.

Það er óljóst hversu margir sem hafa bókað munu breyta þessu í raunverulega sölu.

Edition 1 pallbíllinn verður flokkaður sem „þyngri gerð farartækis“, sagði Aldred. Hann mun slást í hóp keppinauta á markaðnum, þar á meðal Ford F-150 Lightning, sem verður frumsýndur næsta vor, og Tesla Cybertruck, sem er gert ráð fyrir að komi undir lok næsta árs.

Hummer Edition 1 gerðirnar vega 9.046 pund, eða um 4,5 tonn - rúmlega tvöfalt það sem GMC Sierra pallbíll í fullri stærð vegur.

GM hefur sagt að pallbíllinn verði 1.000 hestöfl, með 11.500 pund feta tog og verði þrjár sekúndur úr 0 í 100 km/klst.

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is