Ef maður á lítinn bílskúr er gott að eiga enn minni bíl. En maðurinn í meðfylgjandi myndbandi er búinn að reikna nákvæmlega út hvernig hann kemur bílnum inn í bílskúr sem er svo lítill að hann passar næstum í úlpuvasann. Já, og svo þarf maðurinn auðvitað að komast út úr bílnum.
En ef maður á bíl sem er 149 sentímetra breiður og bílskúr sem er 155 sentímetra breiður, liggur þá ekki beinast við að leggja bara úti við götu eða í næsta bílastæði? Nei ekki í þessu tilviki.
Eins og arfaslök myndgæðin bera með sér, er myndbandið eldgamalt. En gott er það. Gamalt og gott. Bílstjórinn er Belgi en sem betur fer ekki belgmikill. Í athugasemdum við myndbandið án texta kemur fram að sá gamli hafi verið 87 ára þarna en látist á nítugasta og þriðja aldursári. Hann ók víst þessari Fiat Pöndu alveg þangað til.
Aðrar umfjallanir
Þetta er frekar skondinn bíltúr. Mat Wilson sem er maðurinn sem stendur að Carwow fær móður sína í bíltúr á hennar bíl til að sjá hvort hún vilji selja bílinn sem er Tesla...
Nýr Hyundai Ioniq 6 mun keppa við Tesla Model 3 með 500 km drægni. Bíllinn verður frumsýndur á næsta ári.
Á bílasýningunni í Frankfurt um miðjan september mun Opel varpa ljósi á nýjan Corsa-e sem aðeins notar rafhlöður og fullbúinn til rallaksturs, en bíllinn verður frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt 10. september.
Suzuki mun brátt hætta að selja hinn vinsæla Jimny jeppa á Evrópumarkaði. Fyrirtækið hefur þegar haft samband evrópska söluaðila...