Nýr Citroën ë-Berlingo rafmagnssendibíll
Brimborg kynnir glænýjan Citroën ë-Berlingo 100% hreinan rafmagnssendibíl sem væntanlegur er til landsins í apríl og mun Brimborg bjóða hann í tveimur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
ALLT AÐ 275 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Citroën ë-Berlingo rafmagnssendibíll er 100% hreinn rafbíll með 50 kWh drifrafhlöðu. Drægni bílsins skv. WLTP mælingu er allt að 275 km. Citroën ë-Berlingo er fáanlegur með eins fasa 7,4 kW eða þriggja fasa 11 kW innbyggðri hleðslustýringu.
HRAÐHLEÐSLA Í 80% DRÆGNI Á AÐEINS 30 MÍNÚTUM
Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Citroën ë-Berlingo rafmagnssendibíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða drifrafhlöðuna á 5 - 7,5 klukkustundum í öflugri heimahleðslustöð og næstum tóma drifrafhlöðuna má hlaða á 30 mínútum í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð.
TVÆR LENGDIR; L1 OG L2, FÁANLEGUR MEÐ TOPPLÚGU
Citroën e-Berlingo er fáanlegur í tveimur lengdum; L1 og L2. Lengd hleðslurýmis er allt að 2,167 m og með Extenso Cab innréttingu, fellanlegu sæti og lúgu á þili er auðveldlega hægt að flytja allt að 3,44 m langa hluti. Citroën e-Berlingo er fáanlegur með topplúgu að aftan til að flytja langa hluti.
ÞÆGILEG HLEÐSLUHÆÐ, RÚMAR AUÐVELDLEGA TVÖ VÖRUBRETTI
Citroen e-Berlingo er hábyggður og er því með þægilega hleðsluhæð sem auðveldar lestun og affermingu. Rúmmál hleðslurýmis er allt að 3,9 m3 og rúmar auðveldlega tvö vörubretti.
FÁANLEGUR MEÐ RENNIHURÐ Á BÁÐUM HLIÐUM
Citroën leggur mikla áherslu á fyrirtaks vinnuaðstöðu með góðu aðgengi og hámarks nýtingu. Citroën e-Berlingo er fáanlegur með rennihurð á báðum hliðum. Aðgengi að farmi er einnig gott að aftan þar sem tvískipt afturhurð með 180°opnun er staðalbúnaður.
ALLT AÐ 750 KG DRÁTTARGETA
Citroën e-Berlingo er með allt að 750 kg dráttargetu.
ÖRUGG GÆÐI CITROËN ERU STAÐFEST MEÐ 7 ÁRA VÍÐTÆKRI ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU
FORSALAN ER HAFIN Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Brimborg hefur hafið forsölu á glænýjum Citroën ë-Berlingo 100% rafmagnssendibíl í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílar verða hjá Brimborg í apríl og afhendingar til kaupenda eftir páska.
Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Citroën aðstoða viðskiptavini við að setja saman réttu útfærsluna.
Nánari upplýsingar um glænýjan Citroën ë-Berlingo rafmagnssendibíl er að finna á vef Citroën á Íslandi citroen.is eða hjá sölustjóra Citroën á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur eða í síma 5157802.
Aðrar umfjallanir
Þessi kerra er til sölu. Ásett verð er um 70 þúsund dollarar (um 8.700.000 kr.). Áhugasamir geta séð meira um bílinn hér....
Honda frumsýnir nýjan jeppa, Honda Passport, á bílasýningunni í Los Angeles.