Rafbíllinn Renault Megane E-Tech með allt að 470 km drægni
Ný og gjörbreytt kynslóð hins vinsæla Renault Megane er væntanleg til BL í júní og eru forpantanir þegar hafnar. Ekki aðeins hefur Megane verið endurhannaður frá grunni að utan sem innan heldur kemur Megane í fyrsta sinn í alrafmagnaðri útfærslu sem ber heitið Megane E-Tech. Bíllinn hefur þegar verið kynntur á sýningum víða á meginlandinu og sló strax í gegn hjá til að mynda Top Gear í Bretlandi sem útnefndi hann fjölskyldubíl ársins 2022.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641901215_8048299631836488466_2469252989844326.jpg)
Fjölskyldubíllinn að mati Top Gear
Ytri hönnun Megane E-Tech kallar á athygli vegfarenda vegna sérkennandi útlitsins og lengra hjólhafs en áður var sem ásamt flötu gólfi skapa meira og þægilegra rými fyrir farþega og ökumann. Í umsögn sinni sagði dómnefnd Top Gear að með Megane E-Tech kæmi á markaðinn „Hatcback ársins fyrir fjölskylduna“ (Family Hatch of the Year 2022) þar sem sérstaklega var tekið til góðs rýmis, kraftmikillar akstursupplifunar, sportlegrar útlitshönnunar og fallegrar innréttingar.
Tekur allt að 130kW hraðhleðslu
Renault Megane E-Tech verður boðinn með vali um 40 kWh eða 60 kWh rafhlöðu við 160 kW rafmótor sem gefur annars vegar 130 hestöfl og allt að 300 drægni og hins vegar 220 hestöfl og allt að 470 km drægni.
Bíllinn tekur mismunandi hleðslukosti, þar á meðal 22 kWh AC hleðslu, DC hleðslu og allt að 130kW hraðhleðslu í vönduðustu útgáfu bílsins.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1641901214_5351624159967667032_2469251695380180.jpg)
Verð
Megane E-Tech verður boðinn í þremur búnaðarútfærslum, Equilibre, Techno og Ioniq og kostar grunnútgáan með 40 kWh rafhlöðunni 4.990 þúsundir króna. Megane E-Tech með 60 kWh rafhlöðunni kostar 5.690 þúsundir króna. Iconic er vandaðasta útfærsla Megane E-Tech með 60 kWh rafhlöðu við 220 hestafla rafmótor og afar vönduðum búnaði í farþegarými og miklum öryggisbúnaði kostar 6.490 þúsundir króna. Frekari upplýsingar um ríkulegan staðalbúnað mismunandi gerða Renault Megane E-Tech eru að finna á bl.is.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1647704406_1149932792661738688_1330311273565925.jpg)
Hann Palli, eða Paul Restorer eins og hann kallar sig, á magnað safn af bílum frá Majorette, Matchbox, Siku, Lesney, Corgi, Meccano og fleiri framleiðendum. Flestir eru frá sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar og allir keyptir í Póllandi á þeim tíma.
![](https://img.bilaskra.is/images/1643143215_6839025545059215986_3711252398996372.jpg)
Geta leigubílar orðið frægir? Já, alveg ofboðslega! Sumir verða jafnvel „vinsælli en pizza“. Hver þekkir ekki London-taxann, The Black Cab, eða þann gula í New York? Hér eru þeir og nokkrir til viðbótar.
![](https://img.bilaskra.is/images/1643204406_6427152805027810779_3772443135958971.jpg)
Maður sem kallaður er meistari í ökuleikni hefur valdið áhorfendum heilabrotum en að undanförnu hafa birtst myndbönd þar sem hann sýnir hvernig snúa skal við þar sem pláss er lítið. Meira en milljón áhorf eru á þetta daglega en af hverju?
![](https://img.bilaskra.is/images/1612438895_7934317627031203266_317665329000.jpg)
Allt virðist vera að færast í áttina að hreinni orku sem er oft mishrein þegar grannt er skoðað...