Stundum eru fréttirnar um fréttamenn. Í gær fór á flug ein slík frétt um Tori nokkra Yorgey sem var í þann mund að hefja mál sitt í beinni fréttaútsendingu þegar ekið var á hana. Það sem gerðist svo er eiginlega enn sérstakara.
Okkur tókst með snarræði að ná bitanum rétt áður en barnið blessað kyngdi honum með RÚV-merkinu og öllu.
En þetta var nú algjör útúrdúr! Fréttamaðurinn sem hér er til umfjöllunar, Yorgey, var um það bil að hefja upp raust sína í beinni útsendingu í fréttatíma WSAZ í Vestur-Virginíu þegar ekið var á hana. Hún flaug um koll en það sem er svo magnað er að hún hélt bara áfram með sína frétt!
Þið verðið að sjá þetta til að átta ykkur á þessu sérstaka atviki:
Það er óhætt að segja að þessi kona sé vinnusöm því hún kláraði sitt. Bestu fréttirnar í fréttinni um fréttamanninn (hvað eru margar fréttir í því?) sem varð fyrir bíl eru auðvitað þær að í lagi var með Yorgey. Hún fór á sjúkrahús þar sem athugað hvort eitthvað væri laust sem ætti að vera fast o.s.frv. og allt reyndist í besta standi.
Eðlilega kom frekar ófréttatímalegur svipur á hinn fréttamanninn (nema þar sem ég klippti óvart af honum höfuðbút) sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið en fréttin var einmitt um veðrið. Skjáskot úr myndbandi WSAZ
Ekki í fyrsta skipti…
Yorgey sagði í gær, þegar hún var komin á fréttastofuna í öruggt skjól, að í fyrstu hafi hún alls ekki áttað sig á að hún hefði orðið fyrir bíl. En eins og heyra má, eftir byltuna, var hún þó býsna fljót að hugsa og hætti í raun aldrei að „blaðra“ í útsendingunni.
„Reyndar var ekið á mig þegar ég var í menntaskóla, alveg eins og í þetta skipti,“ sagði hún móð og másandi þar sem hún reis upp og náði áttum „einn tveir og tíu“.
Frekar óheppin hún Tori Yorgey. Eða kannski óheyrilega heppin? Ég veit það ekki. Heimurinn veit alla vega af henni núna þó að fæstir viti hvert innihald fréttarinnar var sem hún flutti með svona líka ógleymanlegum hætti. „Aldrei lognmolla í kringum hana þessa,“ munu menn kannski segja um Yorgey seinna.
Aðrar umfjallanir
Það hlýtur að vera skítt að líta til baka og vera einn þeirra sem fjárfesti vísvitandi ekki í Tesla árið 2007 því ráðgjafar mæltu gegn slíkum fjárfestingum; rafbílar væru bara „bóla“. Leyfið mér að kynna: John Doerr.
Á tæplega fjögurra kílómetra dýpi, um 600 kílómetra suðsuðaustur af Nýfundnalandi er flak skipsins Titanic.
Hjá Aston Martin gætu hliðarspeglar framtíðarinnar verið sambland af gamalli og nýrri tækni...
Það vakti nokkra athygli þegar James Dyson - ríkasti maður Bretlands – (hann er orðinn einn ríkasti maður Bretlands með því að búa til ryksugur) sagðist ætla...