Svo mikil er spennan fyrir rafknúnum pallbílum í Bandaríkjunum að fólk virkilega pantar bara allt heila klabbið; Rivian, Cybertruck, F–150 Lightning, Chevrolet Silverado EV… Já, fólk borgar staðafestingargjaldið og kaupir svo þann sem fyrstur kemur í röðinni. Og biðin virðist endalaus.
Er þetta virkilega þannig að neytendum sé sama um hvaða tegund sé að ræða? Bara að það sé rafknúið, pallkyns og amerískt? Tjah, það virðist vera nokkurn veginn þannig – ótrúlegt en satt. Alla vega í mörgum tilvikum. Sem skýrir kannski biðlistana ógnarlöngu.
Chevrolet Silverado EV er einn pallbílanna sem beðið er eftir. Mynd/Chevrolet
Fallegar myndir og pirrað fólk
Rivian, framleiðandinn lukkulegi sem m.a. er fjallað um í þessari grein HÉR birti í fyrradag myndir sem borist höfðu frá alsælum kaupendum sem voru í „vímu“ hveitibrauðsástarinnar eftir að hafa fengið afhenta nýja R1T pallbíla. Myndirnar eru ljómandi fallegar og sýna pallbílana í snotru umhverfi og eru myndirnar með myllumerkinu #adventurousforever á Twitter.
Skjáskot/Twitter@Rivian
Þar sem undirrituð skoðaði ljósmyndirnar (nokrkar þeirra birtast hér, þ.m.t. forsíðumyndin) var nokkuð ljóst að væntanlegir kaupendur eru sumir hverjir ekki sáttir við biðina eftir „sínum“ bíl af sömu gerð.
Skjáskot/Twitter@Rivian
Einn sem pantaði sinn Rivian R1T fyrir nokkrum vikum var svo bjartsýnn að halda að hann fengi bílinn í lok sumars 2022. Hann afpantaði eftir að hafa lesið þetta:
Já, hann @OttogiBeefCurry gafst strax upp á biðinni þegar hann áttaði sig á að fólk sem pantaði Rivian árið 2018 væri enn að bíða.
Það er mikið til í því sem hann segir þarna: Markaðurinn er býsna furðulegur þessi misserin. Í það minnsta markaður rafknúinna pallbíla í Ameríkunni stóru.
Pant panta allt
Fólk forpantar bílana og kostar 1.000 dollara að forpanta Rivian. Gjaldið er ívið hærra en það sem Tesla setur upp fyrir forpantanir en það hefur verið þúsund dollarar frá 2018 eins og sjá má hér.
Svona gera menn þetta þá! Panta alla réttina á matseðlinum en borða bara þann sem kemur fyrst og hætta við rest. Twitter@Rivian
Þeir sem forpanta F–150 Lightning greiða 1.000 dollara, rétt eins og hjá Rivian og er sú greiðsla endurgreidd ef hætt er við pöntunina.
Forpantanir á F–150 Lightning eru orðnar 200.000 talsins í Bandaríkjunum.
GMC innheimtir aðeins einn tíunda þess gjalds, eða 100 dollara fyrir forpöntun á Hummer rafpallbílnum og Tesla sömuleiðis fyrir forpöntun á Cybertruck sem og Chevrolet fyrir Silverado EV.
Hummer EV virðist ekki eins vinsæll og R1T, Cybertruck og Silverado EV, alla vega ekki á þessum þræði sem hér er vísað í.
Útlit er fyrir að margra ára bið sé eftir Cybertruck Teslakóngsins Elon Musk en það má þó vera að lágt staðfestingargjald hafi búið til óheyrilega langan biðlista sem svo að engu verður þegar allir sem borguðu 100 dollara fyrir að forpanta bílinn taka upp tómt veski þegar kallið kemur. Þá styttist biðin mjög. Sjáum hvað gerist.
Hann lætur bíða eftir sér, blessaður Cybertrukkurinn.
Ég er svo hræðilega laus við að hafa nokkurt einasta vit á hagfræði og markaðsfræði að ég ætti auðvitað ekki að tjá mig um neitt sem slíkum fræðum er svo mikið sem fjarskylt. Samt segi ég eitt: Vonandi verður þetta ekki þannig að milljón manns panta pallbíl, þriðjungur afpantar þegar uppgjör og afhending nálgast og framleiðendur sitja uppi með fjölda bíla sem að lokum verða gefnir leikmunadeildum kvikmyndaveranna.
Útiloka ekki að Rivian drífi alla leið til Evrópu
Einn spurði hvort Rivian væri mögulega á leið á Evrópumarkað í nálægri framtíð. Svarað var í nafni fyrirtækisins innan tíu mínútna og var svarið á þessa leið: „Ævintýrið er rétt að byrja og hlökkum við til að sjá alþjóðlega samfélgið okkar taka við stýrinu í nánustu framtíð,“ sagði þar.
Mynd/Twitter@Rivian
Ástralir virðast mjög spenntir fyrir Rivian en þrátt fyrir fjölda fyrirspurna á þræðinum kom ekkert svar frá Rivian. Komin helgi hjá starfsmanninum eða kaffið kannski búið.
Í það minnsta þá eru til ýmis ráð fyrir þá sem eru að bíða eftir Cybertruck og undirrituð hefur tekið saman en auðveldlega má heimfæra öll ráðin upp á bið eftir öðrum rafpallbílum. Allt um biðina löngu og styttingu stundanna hér í greininni Meðan beðið er eftir Cybertruck.
Aðrar umfjallanir
Við höfum öðru hvoru fjallað um hugmynd Volkswagen að nýjum meðalstórum rafdrifnum fólksbíl, sem þeir hafa...
Hönnun nýja Peugeot 208 hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið og nútímalegt útlit sem er undirstrikað með LED fram- og afturljósum...
Það er dálítið sérstakt að lið í Formúlu 1 sé á sagt „á fleygiferð“ áður en keppnistímabilið er í raun hafið en þannig er það nú samt hjá Aston Martin-liðinu. Í fyrsta lagi ætlar það sér að verða fyrst keppnisliða til að kynna nýjan bíl, og í öðru var það rétt áðan að kynna nýjan liðsstjóra. Liðsstjóra sem kemur úr mótorsportheimi BMW.
Um allan heim eru menn og konur að breyta jeppunum sínum. Helst höfum við séð slíkt í fæðingarlandi jeppans í Ameríku, en þetta er gert á fleiri stöðum.