BMW i3 kominn á lokametrana

    • BMW mun hætta framleiðslu á i3 rafbílnum  í júlí þar sem kaupendur sniðganga í dag rafbílinn sem einu sinni þótti byltingarkennd gerð jafnvel þó rafknúnir bílar séu að verða vinsælli í dag.

Upphaflega átti að framleiða þennan litla hlaðbak í verksmiðjunni í Leipzig í Þýskalandi til ársins 2024 vegna mikillar eftirspurnar eftir rafbílum. Síðasta sumar var hins vegar tekin ákvörðun um að færa lok framleiðslunnar fram til sumars 2022.

BMW hefur smíðað um 250.000 i3 í Saxlandi síðan 2013.

image

Þegar i3 kom á markaðinn árið 2013 var i3 hann talinn byltingarkenndur rafbíll, en kantaða útlitið kom kaupendum á óvart.

Þótti byltingarkenndur á sínum tíma

BMW i3 er lítill bíll í B-flokki; háþekjuhlaðbakur framleiddur og markaðssettur af BMW með rafdrifinni aflrás, afturhjóladrifi og eins hraða gírskiptingu, Li-ion rafhlöðupakka í gólfi og með vali á bensínvél til að auka drægnina.

i3 var fyrsti fjöldaframleiddi bíll BMW sem losaði ekki útblástur og var settur á markað sem undirmerki BMW með skilgreiningunni i3.

BMW i3 var hannaður af Richard Kim, og boðinn í einni fimm hurða hönnun með farþegarými úr hástyrktri, ofurléttri CFRP (koltrefjastyrktri fjölliðu) sem er fest við undirvagn úr áli sem ber bílinn, rafhlöðuna, drifkerfið og aflrásina.

image

i3 var frumsýndur sem hugmyndabíll á alþjóðlegu bílasýningunni í Þýskalandi 2011, og framleiðsla hófst í september 2013 í Leipzig.

Eftir að hafa verið í þriðja sæti yfir rafbíla sem seldir voru um allan heim frá 2014 til 2016, og sala bílsins á heimsvísu nam alls yfir 220.000 eintökum um allan heim í lok árs 2021. Bandaríkin eru sennilega söluhæsti markaðurinn.

Töluvert minni sala en hjá öðrum rafbílum

Salan á bílnum í Evrópu jókst um 4,5 prósent, eða í 24.259 selda bíla samkvæmt markaðsrannsóknum JATO Dynamics, en magnið á i3 er talsvert undir öðrum rafhlöðubílum.

Hættir í júlí

BMW staðfesti framleiðslustöðvun á i3 í júlí næstkomandi við Automobilwoche, systurútgáfu Automotive News Europe.

Þegar hann kom á markaðinn var i3 talinn byltingarkenndur og brautryðjandi sem rafbíll, þótt salan í upphafi hafi verið léleg.

Ein af ástæðunum sem BMW gaf fyrir ákvörðuninni um að hætta framleiðslu var sú að hugsanlegir kaupendur rafbíla hafa áhuga á gerðum með meira plássi.

Var hann of mikið „öðruvísi“?

Þar að auki ætti rafbíll ekki að skera sig of mikið út sjónrænt frá „venjulegum“ brunahreyflabílum, sagði talsmaður fyrirtækisins við Automobilwoche. Nokkrir starfsmenn hjá BMW töldu að i3 væri of sérstæður vegna óvenjulegrar lögunar og fæli því marga viðskiptavini frá.

Fyrirtækið vonast til að í framtíðinni muni viðskiptavinir horfa til nýja Mini Electric, fullrafmagnaðs Mini Countryman og framtíðar iX1 til að fullnægja þörfum þeirra varðandi lítinn rafbíl.

„Þessar gerðir hafa tilhneigingu til að skapa umtalsvert meiri einingasölu en i3 náði á sínum besta tíma“, sagði talsmaður fyrirtækisins.

Tapaði BMW á bílnum?

Hvort BMW náði einhvern tímann að græða á i3 er enn fyrirtækisleyndarmál. Stefan Bratzel, forstöðumaður Center of Automotive Management (CAM) í Bergisch Gladbach, Þýskalandi, áætlaði þróunarkostnað bílsins, „Project i“, vel yfir tvo milljarða evra.

„Kolefnisfjárfestingin ein og sér er nálægt 700 milljónum evra,“ sagði Bratzel. Við þetta bættist gífurlega dýr og flókin framleiðsla á ofurlétta efninu fyrir yfirbyggingu i3.

Peter Fintl, sérfræðingur hjá tækniráðgjafafyrirtækinu Capgemini Engineering, sagði við Automobilwoche að hann teldi að tilkoma „-seríu BMW“ hafi verið tíu árum á undan sinni samtíð.

(Automotive News Europe og fleiri vefsíður)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is