Rafbíllinn Mazda MX-30 verður forsýndur hjá Brimborg laugardaginn 26. september.
Nýr Mazda MX-30 er 100% hreinn rafbíll með ríkulegum staðalbúnaði t.a.m bakkmyndavél, forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl, vegaleiðsögn, 18“ álfelgum og innbyggðri varmadælu ásamt víðtækri 5 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
Við hönnun bílsins lagði Mazda mikla áherslu á að lækka mengunarfótspor rafbílsins allan líftíma bílsins, við framleiðslu, notkun og förgun.
Mazda MX-30 kostar frá 3.980.000 kr. og fæst með grænni fjármögnun og 30% útborgun fyrir aðeins 32.967 kr. á mánuði. Auk þeirra þæginda sem heimahleðsla býður upp á má spara allt að 16.000 kr. á mánuði með því að keyra á íslenskri orku í samanburði við meðalstóran bensínbíl.
Á forsýningunni verður í boði ráðgjöf við kaup og uppsetningu hleðslustöðva, kynning á ívilnunum sem eru í boði fyrir hleðslustöðvar og fjármögnun þeirra.
Forsýningin er í sýningarsal Mazda að Bíldshöfða 8 frá kl. 12-16.
Smelltu hér til að kynna þér allt um Mazda MX-30 100% rafbíl.
Aðrar umfjallanir
BMW vonast til að ná til fleiri kaupenda með þriðju kynslóð af BMW 1 „hatchback“ þegar bíllinn kemur í sölu í Evrópu í september. Hin nýja gerð kemur með stærra innanrými og stærra farangursrými en núverandi kynslóð.
Núna á laugardaginn, 14. janúar næstkomandi, blæs Hekla til rafmagnaðrar vetrarsýningar að Laugavegi 174 á milli klukkan 12 og 16.
Alls voru 832 fólks- og sendibı́lar nýskráðir ı́ október sem er 8% aukning frá sama mánuði í fyrra þegar þeir voru 770. Af merkjum BL voru 199 bı́lar nýskráðir borið saman við...
Staflar af hjólkoppum hér og þar og upp um allt en regla á öllu. Hvergi auður blettur en Valdi veit nákvæmlega hvar rétta koppinn er að finna. Þannig hafa margir lýst skipulaginu hjá Valda koppasala eða Þorvaldi Norðdahl eins og hann nú heitir. Valdi er sjötugur í dag!