Nýr uppfærður Porsche 911 sést í vetrarprófun

Verður formlega kynntur 2023

Vefur Auto Express birti myndir af þessari útgáfu af hefðbundnum Porsche 911 með útlitsbreytingum, stuttu eftir að hafa komið auga á Safari-gerðina sem var upphækkuð.

Porsche býr sig undir að setja á markað uppfærða útgáfu af 992-kynslóð 911. Hann á að koma á markað árið 2023 og  fær fíngerða endurhönnun, nokkrar lagfæringar á undirvagninum og hugsanlega fullkomlega stafrænt innanrými.

Myndirnar sýna að Porsche mun ekki fara langt frá núverandi hönnun bílsins, þar sem framleiðandinn virðist aðeins hafa skipt um hluti sem auðvelt er að skipta um eins og aðalljós, bætt við litlum hliðarljósum á hornin að framan og breytt um stuðara.

Það er örlítið snyrtilegra fyrirkomulag á grilli að framan og ný innbyggð LED-dagljós, en vindskeiðin að aftan hefur verið endurhönnuð til að búa til pláss fyrir nýtt miðjusett útblásturskerfi. Það er líka von á mismunandi álfelgum og vali í málningu.

Porsche Safari

image

Porsche Safari – upphækkaður fyrir erfiðari akstursleiðir.

Stærsta breytingin á ytra byrði hins andlitslyfta 911 verður kynning á nýrri torfæruútgáfu - Safariútfærslu. Rallý-innblásna gerðin er með aukinni aksturshæð og plastklæðningu til að vernda hliðarnar gegn rispum þegar ekið er í ójöfnu landslagi.

image

Porsche Safari – öflugri útblástur að aftan.

Nýr 911 Safari frá Porsche virðist einnig vera með loftop í vélarhlífinni í GT3-stíl báðum megin við merkið, en sú staðreynd að þau sjást ekki á nýjustu njósnamyndunum af frumgerðinni bendir til þess að loftopin verði valkostur fyrir torfærugerðina frekar en staðalbúnaður.

Tæknilegar uppfærslur

Að innan er gert ráð fyrir að andlitslyftur 911 haldi sama grunnskipulagi og núverandi bíll. Það mun halda nýjasta PCM 6.0 upplýsinga- og afþreyingarkerfi Porsche, sem hefur nýlega verið uppfært fyrir Spotify-streymi, þráðlaust Android Auto og raddstýringu.

image

Meðal breytinga á uppfærðum 911 má sjá ný hliðarljós fyrir neðan aðalljósin

Hins vegar gæti uppfærði sportbíllinn komið með nýju, fullkomlega stafrænu mælaborði, eins og Taycan EV.

Núverandi gerð er með hliðrænum snúningsmæli ásamt tveimur skjáum, en í staðinn gæti komið mjúkur bogadreginn skjár sem getur birt upplýsingar um akstursstillingu, kort fyrir akstursleiðbeiningar og upplýsingar frá nætursjónkerfi bílsins.

image

Fullkomnari akstursaðstoð

Næsti 911 gæti einnig fengið endurbættan pakka af skynjurum fyrir fullkomnari akstursaðstoðartækni. Búist er við að fjöldinn allur af endurbótum á undirvagni og á vinnnslu gefi 992.2 skarpari svörun þegar ökumaður tekur fulla stjórn.

image

Porsche hefur fínpússað fjöðrun og stýrisuppsetningu 911 sem er hluti af fyrri uppfærslum á miðju ferli, þannig að endurstillt uppsetning á rafstýri og endurskoðaðar stillingar undirvagns eru líklegar.

image

Ný hybrid-útgáfa

Hins vegar er von á nýrri hybrid útgáfu. Hinn langþráði, rafmagnaði 911 bætist við 992.2 línuna, þó að þessum valkosti gæti verið bætt við eftir að andlitslyftingin hefur verið kynnt.

911 með rafmagnsaðstoð gæti líka endað með því að framleiða meira afl en 641 hestafla 911 Turbo S og orðið öflugasti 911 sem völ er á.

image

(byggt á frétt á Auto Express)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is