Jeep Grand Cherokee High Altitude 4xe frumsýndur í New York
Jeep hefur kynnti High Altitude útlitspakkann fyrir Grand Cherokee 4xe tengiltvinnbílinn í New York á dögunum.
Jeep Grand Cherokee High Altitude -pakkinn bætir við einstöku sjö raufa grilli, 21 tommu gljáandi svörtum felgum, gljáandi svörtum áherslum og þakgrindum.
High Altitude pakkinn er einnig fáanlegur í nýjum málningarlit sem kallast Hydro Blue Pearl Coat. Pakkinn er aðeins fáanlegur fyrir Grand Cherokee Summit 4xe og Summit Reserve 4xe útfærslurnar.
Hægt er að panta bæði nýja High Altitude pakkann og Hydro Blue ytri málningarlitinn hjá Jeep umboðum á seinni hluta ársins 2022.
„Það er vel við hæfi fyrir Jeep-merkið sé að frumsýna sinn nýjasta einstaka Grand Cherokee 4xe í New York, þar sem það hefur verið stærsti neytendamarkaðurinn okkar fyrir jeppaeigendur sem vilja goðsagnakennda 4×4 getu, frábæra aksturseiginleika á vegum og hágæða útlit“, sagði Jim Morrison, varaforseti og yfirmaður Jeep vörumerkisins North America.
(frétt á vef TORQUE REPORT)
Aðrar umfjallanir
Það eru alltaf miklar fréttir a bílamarkaðinum í Bandaríkjunum þegar breytingar eiga sér stað á þeim hluta markaðarins sem lýtur að pallbílum.
Það hlýtur að teljast eðlilegt að í húsbíl sé bílskúr, ekki satt? Varla skreppur fólk á 10 til 15 tonna hlunki út í búð eftir mjólk. Nei, þá er nú gott að það sé bílskúr í húsbílnum og auðvitað bíll í bílskúrnum.
Jæja, allir í Don Cano gallana og strákar mega endilega vera með sítt að aftan! Og stelpur líka. Snjóþvegnar gallabuxur eru velkomnar. Ferðinni er heitið til ársins 1986! Það er nefnilega afmæli.
„Hvað ef…“ já, hvað ef einhver væri til í að láta hugmyndir konseptlistamanns um útlit ofurbíls verða að veruleika? Skyggnumst örsnöggt inn í hugarheim eins slíks listamanns.