VW mun framleiða 1 milljón rafbíla á ári í Kína þar sem framleiðsla frá þremur verksmiðjum í samrekstri mun gera bílaframleiðandanum kleift að ná markmiðinu.
BERLÍN – Framleiðsla Volkswagen í Kína, efld með nýrri verksmiðju í Anhui héraði, mun geta smíðað 1 milljón rafbíla á ári frá og með 2023, sagði Ralf Brandstaetter, forstjóri Volkswagen vörumerkisins, við Nikkei á miðvikudag.
Ekki var hægt að fá nánari upplýsingar að sinni hjá Volkswagen.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644248408_7788841113855134640_640181047274313.jpg)
Módel af Volkswagen MEB, eða Modular Electric Drive Matrix, til sýnis í Shanghai 18. apríl 2021.
Bílaframleiðandinn seldi 70.625 rafknúin ökutæki í Kína á síðasta ári og náði ekki markmiðinu að selja 80.000 til 100.000 bíla, þar sem framleiðslan varð einnig fyrir áhrifum af svæðisbundnum COVID-19 faraldri auk vandamála vegna tölvukubba.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644248409_7574077484536511950_640182408947101.jpg)
Yfirmaður Volkswagen í Kína, Stephan Wollenstein, sagði á kynningarfundi í Peking í janúar að bílaframleiðandinn vildi tvöfalda sölu rafbíla sem nota aðeins rafgeyma á þessu ári en varaði við því að litlar hálfleiðarabirgðir gætu hindrað stefnuna að markmiðinu. .
Brandstaetter á að taka yfir rekstur Volkswagen í Kína 1. ágúst. Hann hefur verið aðalstjórnandi fólksbíladeildar VW í Þýskalandi fram til þessa.
Samkvæmt fréttum mun Thomas Schaefer, sem verið hefur aðalstjórnandi Skoda taka við stöðu hans hjá VW.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644248410_4566753581035734886_640183714295801.jpg)
„Undir minni stjórn mun bílaframleiðandinn auka staðbundna þróun í Kína,“ sagði Brandstaetter við Nikkei.
(Reuters – BLOOMBERG)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1622583609_4035361846228782786_5323873544481233.jpg)
MOSKVA – Samkvæmt frétt frá fréttaveitu Reuters hafa Rússar hafið framleiðslu á Aurus Senat lúxusbifreið sem kynnt var af Vladimir Pútín forseta...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612441024_7849710472657011703_2446000315000.jpg)
BL við Sævarhöfða frumsýnir á morgun, laugardaginn 20. júní milli kl. 12 og 16, nýjan og endurhannaðan Renault Clio, einn vinsælasta...
![](https://img.bilaskra.is/images/1630748407_6016308204310779606_1953427220936161.jpg)
Yfirlit yfir það helsta sem má búast við að sjá á IAA Mobility sýningunni í München 6. september 2021
![](https://img.bilaskra.is/images/1612441705_5667310450765890889_3127731423000.jpg)
Við höfum verið að fjalla um uppruna nokkurra bíla að undanförnu og þar á meðal jeppanna. Við byrjuðum á sögu herjeppans frá Willys...