Driftmeistarinn Vaughn Gittin Jr. ók eigin bíl, 1.400 hestafla Ford Mustang Mach-E, í Færeyjum síðasta sumar. Í samstarfi við Ford Performance var tekið upp myndband sem er hrein og tær snilld og höfum við fjallað um það hér. En það gekk nokkuð á við tökurnar, eða ók öllu heldur nokkuð á...
Myndbandið er algjör snilld. Fegurðin, friðurinn og allt það. Já, þetta er fallegt. Mynd/Ford Performance
Það er mánuður síðan við birtum myndbandið þar sem sjá má Vaughn Gittin Jr. geysast um færeyska vegi eins og hvirfilbylur á þessum magnaða 1.400 hestafla rafbíl. Hann, meistari í Formula Drift, driftaði auðvitað heilan helling og jú, ók aðeins á steyptan vegg. Rétt er að taka fram að enginn slasaðist.
Inni í göngunum sem sjá má í myndbandinu.
…so gekk tað galið
Færeyingar fylgdust margir hverjir spenntir með tökunum á þessu myndbandi og að sjálfsögðu voru einhverjir með síma og tóku upp það sem fyrir augu bar.
„Fyrra royndin gekk væl, men so gekk tað galið,“ skrifaði Sofus Hansen sem stóð fyrir ofan gangamunnann og náði upptöku af því þegar Vaughn Gittin Jr. dúndraði á steyptan vegg.
Hér er myndbandið:
Auðvitað lítur út fyrir að allt sé fullkomið og það er það – bara ekki endilega í fyrstu tilraunum. Þetta hefur verið dýrt myndband en það er með því flottara sem undirrituð hefur séð. Hvernig fór með varahluti o.þ.h. eftir áreksturinn veit ég ekki en myndbandið var klárað.
Hér er atriðið sjálft í myndbandinu án klessukeyrslu:
Fyrri greinin:
Aðrar umfjallanir
Oft hef ég hugleitt að sá rithöfundur sem ég dái mest tók aldrei bílpróf. Það er meistari Þórbergur Þórðarsson (sem ég hélt stóran hluta...
Plymouth Hemi Cuda Convertible (blæju) árgerð 1970 er væntanlega einn af þeim sem lenda ofarlega á óskalista bílasafnara...
Toyota á Íslandi fær glæsilega viðbót í vörulínuna í janúar 2021 þegar Toyota Highlander verður kynntur í fyrsta sinn í V-Evrópu. Þessi bíll hefur notið mikilla vinsælda...
Hvað ætli þessi litli (stækkanlegi) snattari myndi endast lengi í íslenska rokinu? Kannski einhverjar mínútur. Þetta er danskt farartæki svo það er eins gott að fara varlega í að gera grín en iEV Z er sex sinnum minni en hefðbundinn fólksbíll.