„Takk fyrir að borga allt saman,“ sagði David Couldhart sposkur á svip við fyrrum liðsfélaga sinn, Mika Häkkinen. Þetta var nú smá grín sem skýrist í meðfylgjandi myndbandi sem tekið var upp síðustu helgi eftir Race of Champions sem fram fór í Svíþjóð.
Þeir hafa breyst eitthvað smávegis síðan 1998 en samt ekki of mikið! Skjáskot/YouTube
Það er hlýtt á milli þeirra félaga og ekki laust við að manni finnist þeir eins og tveir gaurar.
Enda voru þeir að fara að „gaurast“ saman í Finnlandi og eru eflaust að bralla þar eitthvað núna. Sjáið þessa stráka í myndbandinu; eins og þeir séu ekki deginum eldri en tja, 25 ára? Alla vega í anda!
Fleiri kunnu að meta þetta myndband og hér er eittt gott sem undirrituð sá að Mika Häkkinen deildi á Twitter og tengist þeim Coulthard:
Skjáskot/Twitter
Annað sem tengist þessari grein:
Aðrar umfjallanir
Við fjölluðum á dögunum um frumsýningu á nýja Fiat 500e og þær minningar sem bíllinn vakti hjá blaðamanni. Það er vel við hæfi að rifja upp aðeins fleira um Fiat 500 frá árinu 1969.
Upprunalegur eigandi þessa bíls lést fyrir um ári síðan. Hann varð 91 árs. Sá sem keypti bílinn af honum er búinn að taka bílinn aðeins í gegn en hann er eins upprunalegur...
Autoblog segir frá því á sínum vef að það hafi verið um tveggja vikna skeið freyðandi orðrómur um endurvakningu Ford Mustang...
Engin lögga var að fá sér kleinuhring þegar bíll ók á nokkurri ferð inn í City Donuts í Aurora í Colorado á laugardagsmorguninn. Annars hefðu mennirnir tveir ef til vill verið handsamaðir á staðnum en þeir hlupu á brott og skildu allt eftir í klessu.