Þetta er ekki fyrsti bíllinn sem Paul hinn pólski gerir upp. Hann hefur gert upp sjúkrabíla, rallýbíla, löggubíla, strætisvagna, trukka og ég veit ekki hvað og hvað! Meira að segja hefur hann gert ljóta skriðdreka fína.
Á laugardögum og þriðjudögum birtir Paul nýtt efni á YouTube rásinni. Nýtt myndband þýðir nýuppgerður bíll. Þetta hefur hann gert frá 1. janúar 2019 og í upphafi árs setur hann sér markmið og ákveður hvaða bílar verði gerðir upp það árið.
Þetta eru, eins og forsíðumyndin gefur til kynna, bílar af smæstu gerð frá Corgi, Dinky, Matchbox, Hotwheels, Siku, Majorette og Husky.
Margir áhugaverðir bílar (og fleira) eru á ársplaninu 2022.
Vandvirkni framar öllu
Allt er virkilega vel unnið hjá Paul. Eða Paul Restorer eins og hann kallar sig. Hvert smáatriði þarf að vera rétt og er saga hvers bíls rakin. Óneitanlega dálítið sérstakt en það er dásemdin í þessu: Hann gerir þetta fullkomlega og sýnir umheiminum hvað hann er að bralla. Kannski er þetta maður sem er algjör einfari en þarna fær hann að blómstra. Ég veit ekkert um það en hvernig sem það nú er þá er hann á réttri hillu með örsmá verkfærin og allt eftir kúnstarinnar reglum!
Óálitlegur Chrysler Imperial í upphafi ferlisins sem kalla mætti „úr ruslinu í kassann“. Myndir/YouTube
Að lokum er bílnum „parkerað“ í kassanum“ og allt er óaðfinnanlegt að sjá.
Þetta eru frekar löng myndbönd hjá honum blessuðum þannig að ég tók eitt fyrir og skoðaði það helsta. Í myndbandinu gerir hann upp Simca 1100 sem Majorette seldi á árunum 1975-1979.
Paul fer yfir nokkur atriði í texta undir myndbandinu þar sem hann nefnir fylgihluti með bílunum frá Majorette og mismunandi útfærslur leikfangaframleiðandans á sama bíl milli 1975 og 1979. Já, og svo ítarleg smáatriði að það er alveg merkilegt að skoða.
Maður þarf stundum að gefa sér tíma til að njóta smáatriðanna og hreinlega gefa þeim gaum. Þau fara annars svo auðveldlega framhjá manni. Eins og til dæmis sá ég ekki að á Simca vantaði krókinn. Myndi Paul nú varla kalla það smáatriði!
Hér er myndbandið og ég mæli með að áhugasamir stikli þar á stóru, til að skilja nákvæmnisvinnuna sem að baki er.
Annað dellutengt og gott:
Aðrar umfjallanir
Nýr rafdrifinn Maxus pallbíl er að vísu enn bara afturhjóladrifinn – en 4x4 er handan við hornið. Er líka að koma á markað í Noregi og vekur þar athygli...
Núna þegar ferðamannatíminn stendur sem hæst og Íslendingar flykkjast um landið sem aldrei fyrr er ekki úr vegi að kíkja á þá staði sem bílamenn ættu...
Subaru mun enn einu sinni sýna hugmyndabíl undir heitinu „Viziv“ á sýningunni í Genf.
Brimborg frumsýnir glænýjan, langdrægan Peugeot e-2008 SUV 100% hreinan rafbíl með mikla veghæð, háa sætisstöðu og 320 km drægni laugardaginn...