Brimborg kynnir nýjan og  langdrægan Peugeot e-2008 - 100% hreinn rafbíll

    • 320 km drægni á 100% hreinu rafmagni

Brimborg frumsýnir glænýjan, langdrægan Peugeot e-2008 SUV 100% hreinan rafbíl með mikla veghæð, háa sætisstöðu og 320 km drægni laugardaginn 8. ágúst að Bíldshöfða 8 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri frá kl. 12-16.

image
image

Helstu atriði:

    • 320 km drægni á 100% hreinu rafmagni
    • 30 mínútur í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð
    • Fjarstýrður forhitari tryggir alltaf heitan bíl
    • Varmadæla eykur virkni miðstöðvar og drægni
    • Mikil veghæð og há sætisstaða
    • 5 ára ábyrgð á bíl og 8 ár á drifrafhlöðu

GLÆNÝR LANGDRÆGUR PEUGEOT e-2008 SUV 100% HREINN RAFBÍLL

Peugeot e-2008 rafbíll er sjálfskiptur með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél, varmadælu sem eykur orkunýtingu og drægni,  50 kWh drifrafhlöðu sem er snögg í hleðslu og skilar 320 km drægni og forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur þegar þú leggur af stað. Peugeot e-2008 rafbíll er með fimm ára alhliða ábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.

320 KM DRÆGNI Á 100 % HREINU RAFMAGNI

Peugeot e-2008 SUV 100% hreinn rafbíll er með 50 kWh drifrafhlöðu og varmadælu sem endurnýtir orku fyrir miðstöðina og því er drægni bílsins skv. WLTP mælingu framúrskarandi eða 320 km.

30 MÍNÚTUR Í 80% DRÆGNI Í 100 KW HRAÐHLEÐSLUSTÖÐ

Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Peugeot e-2008 SUV rafbíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á 7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð og aðeins tekur 30 mínútur að hlaða tóma drifrafhlöðuna í 80% hleðslu í 100 kW hraðhleðslustöð.

FJARSTÝRÐUR FORHITARI TRYGGIR ALLTAF HEITAN BÍL

Peugeot e-2008 er með fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíll er heitur og þægilegur þegar lagt er af stað. Einfalt er að tímasetja, stöðva og virkja hleðslu í MyPeugeot® appinu ásamt því að tímastilla forhitarann. Einfalt er að vera með yfirsýn á bílnum í snjallsímanum með MyPeugeot® appinu. Hægt er að skoða upplýsingar um bílinn þ.á.m. stöðu á drægni, hleðslustöðu, þjónustuyfirlit og panta tíma á þjónustuverkstæði.

VARMADÆLA EYKUR VIRKNI MIÐSTÖÐVAR OG DRÆGNI

Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi því varmadælur virka best við -5 til 15°C og er hún staðalbúnaður í Peugeot e-2008 rafbíl. Hún endurnýtir orku fyrir miðstöð bílsins sem gerir það kleift að hafa miðstöðina í gangi og halda góðum hita í bílnum á köldum dögum án þess að það komi niður á drægni bílsins. Rafbílar án varmadælu þurfa annars að nota hluta af orku rafhlöðunnar fyrir miðstöðina.

MIKIL VEGHÆÐ OG HÁ SÆTISSTAÐA

Hönnun nýja Peugeot e-2008 SUV er alveg ný frá grunni og hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið útlit sem er undirstrikað með LED fram- og afturljósunum sem setja sterkan svip á bílinn. Peugeot e-2008 er með mikla veghæð og háa sætisstöðu svo það er einstaklega þægilegt að ganga um hann. Innréttingin er nýjasta kynslóð af Peugeot 3D i-Cockpit sem er fullkominn stafrænn heimur þar sem mælaborð og stjórntæki eru í sjónlínu ökumanns og bæta þannig enn akstursgæði.

FULLKOMIN ÖRYGGISTÆKNI

Glænýr Peugeot e-2008 SUV er með nýjustu aksturs- og öryggistækni sem aðstoða ökumanninn við aksturinn og tryggir örugga ökuferð. Veglínuskynjun, blindpunktsaðvörun, vegskiltalesari, aðlögunarhæfur hraðastillir, sjálfvirk neyðarhemlun (Active city break) og ný gerð bakkmyndavélar eru dæmi einstakan öryggisbúnað í Peugeot e-2008 SUV.

5 ÁRA ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU

Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með langri 5 ára alhliða ábyrgð á bílnum og sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.

GRÍÐARLEGA GÓÐ FORSALA

Forsalan á Peugeot e-2008 hófst í vor og hefur gengið gríðarlega vel. Nú þegar hafa fjölmargir kaupendur forpantað nýjan e-2008 og valið sinn uppáhaldslit og útfærslu. Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna alla lausa bíla á lager og í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.  

Peugeot e-2008 SUV kostar frá 4.650.000 kr. og er fáanlegur í fjórum búnaðarfærslum; Active, Allure, GT-line og GT.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is