Við sem búum á þessu landi megum eiga það að vera frekar sniðugt jeppafólk. Margslungið veðurfarið gefur okkur ekki bara byr undir báða vængi heldur blæs það stundum öllu hreinlega um koll. Þá er nú gott að eiga góðan jeppa. Toyota hefur haldið jeppasýningar um árabil og nú er komið að sýningunni 2022.
Frá jeppasýningunni í fyrra. Ljósmynd/Toyota
Það sem mér persónulega finnst skemmtilegt við jeppasýningar Toyota er að þar eru ekki „bara“ bílar sem umboðið er með til sölu. Þar eru nefnilega alls konar „úber-jeppar“ til sýnis og í ár, þ.e. á morgun, verður til sýnis býsna vel búinn jeppi frá Neyðarlínunni sem notaður er við, tjah, verstu aðstæður ef svo má segja. Alla vega við mjög krefjandi aðstæður út um allt land.
Svo er alltaf gaman að sjá magnaða jeppa sem meistararnir frá Arctic Trucks hafa breytt og gert að algjörum listaverkum. Listaverkum á hjólum.
Arctic Trucks eiga iðulega eitthvað fallegt til að sýna. Þessi var á sýningunni 2021. Ljósmynd/Toyota
Klukkan 12 á morgun, laugardaginn 26. febrúar hefst húllumhæið og stendur til klukkan 16.
Tæknibíll „mannsins með drónann“
Eitt af því sem hlýtur að teljast með því forvitnilegra á sýningunni er bíll ljósmyndara nokkurs. Björn Steinbekk kannast margir við vegna hreint út sagt magnaðra drónamyndbanda frá eldgosinu í fyrra. Þessi myndbönd og ljósmyndir fóru um allan heim - enda alveg svakalega flott. Björn er jeppamaður og á einn tæknilegasta Hilux landsins.
Björn Steinbekk, Hilux og Kleifarvatn. Ljósmynd/Björn Steinbekk
Þessi Hilux er víst (hef ekki séð hann sjálf) svo gott sem fullbúið útsendingarstúdíó í formi jeppa.
Margs konar jeppatengdur búnaður verður til sýnis. Þetta er frá sýningu síðustu árs. Ljósmynd/Toyota
Útivistargræjur, jeppagræjur og allt mögulegt til jeppaferða frá Garminbúðinni, Hafsporti og Unbroken verður á sýningunni. Og auðvitað líka nýir fjórhjóladrifsbílar Toyota; Land Cruiser, Hilux, Highlander, RAV4 og Yaris Cross. Ef mér skjátlast ekki verður heitt á könnunni – annað kæmi á óvart!
Hilux tekur á sig ýmsar myndir með breytingum og búnaði. Myndin er frá sýningunni 2021. Ljósmynd/Toyota
Sem sagt: Á morgun, laugardaginn 26. febrúar, á milli 12 og 14 í Kauptúni í Garðabæ.
[Forsíðumyndina á Björn Steinbekk og þar má sjá bílinn góða á brúnni yfir Kreppu]
Aðrar umfjallanir
Í gærmorgun voru það bílskúrarnir en í dag eru það bílastæðin! Eftir að hafa búið við Skólavörðustíginn um árabil kann maður nefnilega orðið að meta almennileg „parkeringspláss“ eins og sagt er á sunnudögum.
Byltingarkennd EQXX rafbílahugmynd Mercedes-Benz lofar raunverulegri drægni upp á 1.000 kílómetra. Nýbirtar nyndir af bílnum skapa eftirvæntingu en frumsýningin verður í janúar.
Maður skyldi nú ætla að næsta ómögulegt væri að tveir bílar væru fyrir tilviljun með sama bílnúmerið. Hvað þá fjórir bílar með sama bílnúmerið! Í dag eru slík mistök við skráningu svo gott sem ómöguleg, en þetta gerðist nú endrum og sinnum hér áður fyrr.
Hversu hratt kemst maður á reiðhjóli? Virkilega hratt; ef hjólið er fest við mjög öflugt mótorhjól. Nýtt heimsmet var slegið í vikunni og í því tilviki var eins gott að vera með kjaftinn lokaðan og hjálm til að halda andlitinu á sínum stað og höfðinu þar sem það á vera!