Meira að segja Jeremy Clarkson, sleggjan úr Top Gear, var eitt sinn ungur. Eða alla vega yngri. Hér er bráðskemmtilegt 25 ára myndband með Clarkson en hann hafði þá verið einn kynna Top Gear þáttanna í 9 ár.

image

Það er óhætt að segja að hinn tæplega sextíu og tveggja ára gamli Jeremy Clarkson hafi verið áberandi í sjónvarpi býsna lengi, eða í 34 ár, samkvæmt nýjustu útreikningum.

Hann er gott dæmi um skemmtilegan þáttarstjórnanda sem ekki fékk vinnu í sjónvarpi útlitsins vegna. Hann er einfaldlega skemmtilegur. Í dag er hann einn þriggja stjórnenda þáttanna The Grand Tour  en þekktastur er hann þó fyrir Top Gear þættina á BBC ásamt þeim James May og Richard Hammond.

image

Frá vinstri: Richard Hammond, James May og Jeremy Clarkson. (Þeir eru ekki með fjólublátt hár. Lýsingin gerir þá svona sprellikarlalega.) Mynd/Wikipedia

En hér er myndband frá árinu 1997, úr Top Gear þætti, og til umfjöllunar eru hinar ýmsu útfærslur af Ford Transit. Ljómandi gott og hressandi á þriðjudegi sem þessum!

Annað „gírað“ frá öðrum tíma: 

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is