Þetta litla kvikindi kemst upp í 130 km/klst og hefur verið líkt við Teslu hvað tækni snertir en verðlagningin þykir nær Ford Fiesta. Útlitslega er hann þó í líkingu við eitthvað löngu grafið og gleymt.
Electra Meccanica Solo EV er smíðaður í Arizona í Bandaríkjunum og hann er afturhjólsdrifinn. Já, afturhjóls en ekki hjóla því hjólið er bara eitt!
Eftir sem áður vekur rafbíllinn, að sögn manns sem reynsluók þessu apparati, kátínu hjá flestum sem hann sjá. Verðið er um 2.700.000 kr eða 18.000 dollarar.
Aðrar umfjallanir
Haldi þessi þróun áfram gæti endað með því að Norðmenn breyti nafni höfuðborgarinnar í Tesló í stað Osló. Þannig er að árið 2021 var slegið met, því fleiri bílar hafa ekki selst á einu ári í Noregi síðan árið 1986. Tesla var mest seldi bíllinn 2021.
Við fjölluðum um valið á „heimsbíl ársins 2022“ á dögunum og í dag var ljóst um úrslitin: Hyundai Ioniq 5 „kom, sá og sigraði“...
Ætti maður 50 milljónir á lausu, yrði þessi þá fyrir valinu? Það er nú það! Nei, segi ég, en kannski aðrir séu spenntir fyrir sérsmíðuðum 6x6 Ford Bronco. Þetta er nú örugglega ekkert leiðinlegt apparat.
Talið að um 37 milljónir bíla með um 50 milljón gallaða loftpúða falli undir þessa innköllun í heild í heiminum.