Ökumaðurinn Sebastian Vettel er með Covid-19 og ekur því ekki í fyrstu keppni tímabilsins í Formúlu 1. Nico Hulkenberg kemur í hans stað í keppninni sem fram fer í Bahrain nú um helgina.
Sebastian Vettel í Abu Dhabi 2021. Mynd/Aston Martin
Ekki keppt síðan 2020
Nico Hulkenberg er varaökumaður liðsins en hann hefur ekki keppt í Formúlu 1 síðan árið 2020 í Eifel sem fram fór í Nürburgring í Nürburg í Þýskalandi. Þá kom hann inn í staðinn fyrir Lance Stroll, ökumann Racing Point.
Það var í þriðja skiptið það árið sem Hulkenberg kom inn í annars strað en hann kom í staðinn fyrir Sergio Perez tvær keppnishelgar á brautinni í Silverstone.
Aðrir keppendur virðast nokkuð brattir en Daniel Ricciardo er allur að koma til eftir sín veikindi. Hann reyndist smitaður í síðustu viku en keppir ásamt liðsfélaga sínum Lando Norris fyrir McLaren í Bahrain.
Fleira óviðbúið í Formúlunni:
Aðrar umfjallanir
Það ráku margir upp stór augu og enn aðrir settu á sig gleraugu þegar fjallað var um skrapatól nokkurt í gær sem sagt er að lagt hafi 2 milljónir kílómetra að baki. Nú er kjörið tækifæri að reka upp enn stærri augu, sækja sjónaukann og gleraugun því hér er fallegur bíll sem hefur afrekað annað eins.
Í dag er það svo að flestir nýir bílar standi sig vel í árekstrar- og öryggisprófunum en það var ekki alltaf eins einfalt og bílaframleiðendur vilja. Autocar birti á vefnum...
Bíllinn á sér vel yfir hundrað ára sögu hér á landi og í upphafi bílaaldar var ekki mikið til af orðum um þá hluti sem...
MÍILANÓ / PARÍS – Enn á ný berast fréttir af samrunaviðræðum Fiat Chrysler við evrópsk bílafyrirtæki. Við höfum hér á þessum vef fjallað um tilraunir þeirra...