Þessi er alveg upprunalegur
BMW 2002 tii árgerð 1974 er merkilegur bíll fyrir margra hluta sakir. Þessi gerð bíla var sú fyrsta búin túrbínu sem framleiðslubíll í Evrópu. Sá bíll var kynntur á Frankfurt Motor show árið 1973.
2002 tii (touring international injection) var búinn vél úr 2000 bíl BMW sem var þá lúxusútgáfa BMW. Vélin var 2 lítra og vísar í gerðarnúmer bílsins, með beinni innspýtingu og gaf um 128 hestöfl. 2002 bíllinn var því þokkalega sprækur á þess tíma mælikvarða og náði um 185 kílómetra hámarkshraða.
Það var Kristinn Guðnason, bílaumboð sem seldi Bimmana á þessum árum. Síðast var umboðið á Suðurlandsbraut 20 en hann seldi líka Renault bifreiðar.
Hvað stendur BMW fyrir?
En það er kannski fróðlegt úr því að við erum að tala um BMW í þessum greinarstúfi að velta fyrir okkur fyrir vað BMW skammstöfunin stendur. Bayerische Motoren Werke er nafn framleiðanda bílanna og var um skeið þriðji stærsti bílaframleiðandi í Þýskalandi. Þeir voru þekktir fyrir að framleiða gæðabíla og þeir þóttu einnig einfaldir í allri sinni gerð.
Það þótti því frekar auðvelt að stela slíkum bíl. Þó svo að hryðjuverkasamtökin Baader Meinhof hafi líklega stolið jafnmörgum Mercedes og BMW, festist skammstöfunin við bílinn – allavega í skamman tíma. Baader Meinhof Wagen.
Það var síðan árið 1975 sem BMW hættir framleiðslu á 2002 bílunum og kemur þá 300 línan í staðinn.
Toppeintak
Myndirnar af bílnum í greininni eru af 1974 árgerð af BMW 2002 tii. Þessi bíll hefur ekki verið gerður upp er því alveg upprunalegur fyrir utan hefðbundið viðhald.
Bíllinn stóð inni í þurru rými til margra ára er sagt í sölulýsingunni.
Lítið ekinn
Það eina sem hefur verið gert er að hemlakerfið hefur verið tekið í gegn, nýr vatnskassi, nýr rafgeymir, nýtt pústkerfi og Kugelfisher eldsneytiskerfið hefur verið yfirfarið. Ný dekk, ný öryggisbelti og skipt um alla vökva í bílnum.
Staða á kílómetramæli er um 49 þús. kílómetrar. Bíllinn er alveg óryðgaður og lítið sér á lakki. Hér má skoða bílinn ef áhugi er á kaupum. Verðið er ásett um 45 þús. evrur (6,4 milljónir íslenskra króna).
Byggt á sölulýsingu og Wikipedia. Myndir: Superclassics.eu
Aðrar umfjallanir
Þó fæstir kunni að tengja Corvettur við geimferðir og NASA þá er tengingin nú samt sterk og hefur verið lengi. Corvettur geimfaranna þriggja, áhafnar Apollo 12, eru sennilega þekktastar í því samhengi.
Það getur verið alveg hreint ótrúega erfitt að finna út úr þessu með dælustútinn þegar um rafbíl er að ræða. Þetta myndband er vonandi sviðsett en hvernig sem það nú er þá lætur það manni líða eins og maður sé svakalega klár. Alla vega eitt augnablik.
Það er sjaldan sem fólki er einlæglega hrósað fyrir lélega bílgarma. Handónýt bílskrifli eru samt sem áður það sem þykir best í finnska bæjarkrílinu Pello. Alla vega fjóra daga á ári.
McLaren er með áætlun um sportlegan fólksbíl sem keppa mun við Porsche Taycan.