Rolls-Royce Spectre EV lýkur vetrarprófunum sínum í Svíþjóð
Rolls-Royce hefur tilkynnt að rafbíllinn Rolls-Royce Spectre hafi lokið einum fjórða af alls 2,5 milljón kílómetra prófunaráætlun sinni, þar sem bíllinn lauk vetrarprófunum í Arjeplog í Svíþjóð.
Spectre-bíllinn sem við sjáum hér á myndinni er enn þakinn sömu felulitunum, eins og frumgerðirnar sem við sáum síðasta haust – að viðbættum óhreinindum eftir aksturinn, en það kom fram á vef Torque Report að við getum séð aðeins meira af hönnunarupplýsingum núna.
Að framan mun Spectre vera með skipt framljós með lítilli LED ræmu fyrir ofan.
Að aftan eru mjó, lóðrétt ljós. Rolls-Royce lítur á Spectre sem arftaka Phantom Coupe.
Sérhönnuð útgáfa af „Spirit of Ecstasy“ húddskrautinu er á Spectre.
Spectre fær einnig sérstaka loftaflfræðilega hannaða útgáfu af „Spirit of Ecstasy“ húddskrautinu og bratta framrúðu sem gefur honum 0,26 viðnámsstuðul. Spectre mun fá 23 tommu felgur og er fyrsta gerð Rolls-Royce til að fá felgur af þeirri stærð síðan 1926.
Undir yfirborðinu mun Spectre byggjast á „Architecture of Luxury“ grunni vörumerkisins.
Rafhlaðan er sett í gólfið og hún virkar einnig sem 1.500 pund af „hljóðdempun“.
„Algerlega hljóðlaus og hreinn“ („perfectly noiseless and clean“) stendur á hliðinni á tilraunabílnum, og það er ekki að efa að Rolls-Royce mun standa við þetta slagorð!
Nú þegar vetrarprófunum er lokið á Rolls-Royce Spectre enn eftir að klára 500.000 mílur af prófunum. Áætlað er að fyrstu afhendingar hefjist á fjórða ársfjórðungi 2023.
(Frétt á vef Torque Report)
Aðrar umfjallanir
Hjá Aston Martin gætu hliðarspeglar framtíðarinnar verið sambland af gamalli og nýrri tækni...
Sumarhelgi nokkra 1993 var söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir gestur Michaels Jackson á búgarði hans Neverland. Einkabílstjóri Jackson sótti Önnu Mjöll heim til hennar í Los Angeles á hvítri limúsínu en á leiðinni á búgarðinn bilaði limúsínan. Ævintýrið er byrjað, lesendur góðir!
Fáir bílar hafa sennilega breytt eins miklu fyrir eins marga og hinn eini sanni „Jeppi“ þegar hann kom fram á sjónarsviðið í byrjun...
Toyota kynnti nýja útgáfu af hreinum rafknúnum jeppa bZ4X á bílasölunni í Tókýó í ár, í GR Sport búningi. Bíllinn er enn hugmynd í bili - en miðað við...