Ökumaðurinn Ken Block ætti ekki að vera lesendum Bílabloggs með öllu ókunnugur en hann er þekktur fyrir að aka þar sem aðrir láta sig varla dreyma um og á þeim hraða sem tjah, er vel yfir skynsamlegum mörkum í huga flestra. Til dæmis á Knife´s Edge sem er mjög lýsandi nafn á fyrirbærinu.
Auðvitað langar mann að aka þarna! En að láta verða af því... Lof mér að kynna: Ken Block! Skjáskot/YouTube
Myndbandið er áhugavert frá byrjun en hér hefst spilun á 2:18 Endilega byrjið á byrjuninni ef þið eruð í stuði:
Annað hressandi sem tengist Ken Block:
Aðrar umfjallanir
Þetta er flókið mál! Enda er Lewis Hamilton ekki vanur að vera á hvolfi en hér á myndinni er hann engu að síður á hvolfi í þotu af gerðinni Aero L-39 Albatros.
Það eru til ýmsar útgáfur af bílum sem eru með rafmótorum og stundum illskiljanlegar skammstafanir viðloðandi þá...
„The snow must go on,“ segja þeir í Austurríki sem svellkaldir halda árlega GP Ice Race og hafa gert í rúm 40 ár. Viðburðurinn hefur laðað að um 10.000 gesti en í fyrra og í ár voru engir áhorfendur á staðnum. Þetta var bara á netinu. Fúlt en ekki eins kalt samt…
Hann lítur út eins og Volkswagen enda er þetta Volkswagen. Þó er það engin trygging fyrir því að það sem frá þeim framleiðanda kemur líkist Volkswagen. Ekki minna pylsurnar sem VW framleiðir neitt á það sem maður þekkir sem Volkswagen.