Volvo stendur sig vel í örygginu
- Volvo vinnur til sín flest IIHS Top Safety Pick+ verðlaun allra bílaframleiðenda árið 2022
- Orðsporið fyrir öryggi heldur áfram
Autoblog vefurinn í Bandaríkjunum skrifar eftirfarandi:
IIHS og Volvo skilja að gerðir á milli bensínútgáfu og rafknúinna útgáfu af sama bílnum, jafnvel þó að prófanirnar hafi aðeins verið gerðar á einu afbrigði. Til dæmis fær XC60 Recharge TSP+ þrátt fyrir að prófanir hafi verið gerðar með bensínknúnum XC60 T5 og T6 gerðum.
Að sama skapi fær C40 Recharge verðlaunin þrátt fyrir að prófunin hafi verið gerð á svipuðum XC40 Recharge.
Einnig, eins og með TSP+ viðurkenningar til Mazda frá því fyrr á þessu ári, eru sumar fluttir yfir á 2022 árgerð bíla úr prófunum á fyrri árgerð bíla. Þetta er aðeins þegar gerðin hefur ekki breyst verulega. Til dæmis var einkunn XC60 2022 byggð á árekstrarprófi 2018.
Fyrir utan árekstrarprófanir fékk Volvo toppeinkunn fyrir staðlaðan öryggisbúnað eins og árekstraviðvörun fram á við, sjálfvirka neyðarhemlun og greiningu gangandi og hjólandi.
Það skal tekið fram að flestar Volvo gerðir fengu einkunnina „viðunandi" fyrir auðvelda notkun „LATCH“ öryggissætanna. Þetta er næstbesta einkunnin en hefur ekki áhrif á áreksturshæfni og skiptir ekki máli ef þú notar ekki barnastóla. XC40 gerðir fengu „lélega“ einkunn fyrir öryggisbeltaáminningar, sem IIHS taldi hvorki hafa nógu hátt né nógu lengi. Sumar gerðir eins og S90 og XC60 fengu „viðunandi“ einkunnir á framljósum, þar sem IIHS vildi að geislarnir væru bjartari í beygjum.
Tengt vídeó:
Aðrar umfjallanir
Það var ekki fyrr en um miðja öldina síðustu að Coca Cola fyrirtækið fór að staðla útlit bíla sinna. Upphaflega var guli liturinn áberandi...
Jeep er að kynna nýja sérútgáfu af Renegade 2023, sem kallast Renegade Upland
Þessi umræddi bíll var framleiddur þann 21. október 1971 í Hamtramck samsetningarverksmiðjunni í Michigan. Hann verður því 51 árs í mánuðinum...
Alþjóðlega bílasýningin í París, eða Mondial De L'Auto Paris, er til skiptis annað hvert á á móti bílasýningunni í Frankfurt í Þýskalandi.