Rafbíll Mercedes rýfur 1.000 km drægnimúrinn til að fara fram úr Tesla
Mercedes Vision EQXX hugmyndabílnum var ekið frá nágrenni Stuttgart til strandbæjarins Cassis við Miðjarðarhafið og átti enn eftir 15 prósent af hleðslunni við komuna.
Samkvæmt frétt frá Bloomberg ók Mercedes-Benz rafbíll meira en 1.000 km frá Þýskalandi til frönsku rívíerunnar á einni hleðslu og færði baráttuna um að grípa sviðsljós tækninnar frá Tesla á næsta stig.
Frumgerð EQXX-bílsins fór frá Sindelfingen, nálægt Stuttgart, um Sviss og Ítalíu til strandbæjarins Cassis við Miðjarðarhafið, sagði bílaframleiðandinn á fimmtudag.
Léttur undirvagn fólksbifreiðarinnar og loftaflfræðilegt snið gerði henni kleift að klára ferðina með helmingi minni rafhlöðu en EQS flaggskipið EV frá Mercedes.
Rafhlaða Mercedes Vision EQXX hugmyndarinnar er með nýrri efnafræði sem þróuð var með aðstoð Formúlu 1 sérfræðinga frá Mercedes-AMG High Performance Powertrains deildinni í Bretlandi. Ætlunin er að setja rafhlöðusellurnar í minni bíla Mercedes frá og með 2024.
EQXX „er skilvirkasti Mercedes sem smíðaður hefur verið,“ sagði forstjórinn Ola Kallenius í yfirlýsingu. „Tækniáætlunin á bak við það markar tímamót í þróun rafknúinna farartækja."
Eftir margra ára gagnrýni fyrir að vera seinn að taka upp rafbíla, jók þýski framleiðandinn á síðasta ári þátttöku sína með kynningu á EQS, sem státar af allt að 739 km akstursdrægni.
Mercedes er að dýpka umbreytingarsókn sína á þessu ári með rafknúna EQE fólksbílnum og EQB jeppanum.
Samt þegar kemur að afgreiðslu á rafbílum er Tesla enn fremstur í flokki.
Með EQXX er Mercedes að reyna að sýna fram á að geta gert betur en Tesla í raftækni. Frumgerðin fór í ferðina á allt að 140 km/klst hraða og átti 15 prósent af hleðslu eftir við komuna.
Rafhlaða bílsins er með nýrri efnafræði sem þróuð var með aðstoð Formúlu-1 sérfræðinga frá Mercedes-AMG í Bretlandi.
Ætlunin er að setja rafhlöðusellurnar í minni bíla Mercedes frá og með 2024.
Mercedes stytti tíma til að þróa EQXX um 18 mánuði með því að reiða sig á eftirlíkingar og stafræn hönnunartæki frekar en raunprófanir og varahlutaframleiðslu.
„Við þurfum að fylgjast með því sem er að gerast á hugbúnaðar- og tæknihliðinni og það er iðnaður sem breytist hratt,“ sagði Schaefer í viðtali. „Við þurfum að vera hröð í þróun okkar, miklu hraðari en við vorum í fortíðinni.“
Aðrar umfjallanir
Einn af þeim bílum sem átti að vera ein af stjörnunum á bílasýningunni í Genf, frá ítölsku hönnuðunum Giorgetto...
PARÍS - Renault stækkar úrval rafmagnsbíla sinna með fullblendingsútgáfu (full-hybrid) af Captur litla sportjeppanum, eftir að hafa sett á markað...
Nú er sá árstími að undirritaður horfir á nokkrar ódauðlegar ræmur sem unnu hug og hjarta hans á yngri árum. Ein þeirra er hin bráðfyndna Planes, Trains and Automobiles...
Það er ekkert launungarmál að notaðir og nýir bílar seljast eins og heitar lummur víða í heiminum og þar eru Bandaríki Norður-Ameríku engin undantekning. Það sem kemur kannski dálítið á óvart er hvaða bíll seldist hraðast allra í júnímánuði.