Elvis Presley var ekki beinlínis bílasafnari en hann hafði mikinn áhuga á bílum. Honum fannst rosalega gaman að gefa bíla! Einn daginn keypti hann 32 Cadillac og síðdegis þann sama dag var hann búinn að gefa þá. Eins og fólk svona almennt gefur konfekt eða blóm.

image

Elvis hafði yndi af akstri góðra bíla.

Sérfróð um Elvis

Bílasýningin í New York hófst í gær og þar er hellingur af merkilegum tækjum. Á meðal skærustu stjarna sýningarinnar er Lincoln Continental sem sjálfur Elvis Presley keypti nýjan á sínum tíma.

image

Þessi er á bílasýningunni í New York.

Angie Marchese er líka „á sýningunni“ en þó ekki til sýnis eins og bíllinn heldur er hún safnstjóri í Graceland og forstöðumanneskja skjalasafnsins þar. Hún veit meira um Elvis en flestir og er starf hennar síður en svo léttvægt!

image

Marchese er sú sem „fann“ þennan fallega Lincoln sem hafði verið í eigu Elvis. Bílinn fann hún í Ástralíu.

Fólk sem telur sig eiga „Elvis-bíl“

Eins og imprað var á hér að ofan, voru þeir ófáir bílarnir sem Elvis gaf vinum sínum eftir að hann komst í álnir. Á meðal þess sem fellur undir starfssvið Angie Marchese er að svara þeim fjölda fólks sem hefur samband við Graceland og segist eiga einn þeirra bíla sem Elvis gaf einhverjum í fyrndinni. Marchese þarf að ganga úr skugga um hvort svo sé eður ei og það er heljarinnar „prósess“.

image

Haft var eftir henni á bílavefnum AutoEvolution að stutta útgáfan af því hversu merkilegir gjafabílarnir væru sé um það bil svona: Þeir væru ekki mikils virði nema rassinn á Elvis hefði snert sæti bílsins.

En þessi Lincoln?

Nýr kostaði Lincoln Continental 10.000 dollara á þessum tíma og var dýrasti kagginn á markaðnum. Þú varst algjör „nóboddí“ ef þú áttir ekki 1956 árgerðina af Continental Mark II. En einungis 3000 eintök af þeirri gerð voru framleidd. Aðrar stórstjörnur sem áttu bíl af sömu gerð voru t.d. Frank Sinatra og Elizabeth Taylor. Sem sagt bíll sem almenningur átti ekki möguleika á að eignast.

image

Það sem gerir bílinn hans Elvis svo merkilegan er sagan af því hvernig hann eignaðist þetta eintak. Elvis keypti bílinn ekki af því að hann var sá dýrasti sem völ var á, né heldur til þess að sýna sig.

Nei, hann vantaði bara bíl.

Daginn sem hann keypti þennan Lincoln ´56 var Elvis á Lincoln Premier sem var meðalstór bíll – svona eins og Lincoln Continental í dag.

Útkrotaður bíll

Þegar Elvis vaknaði daginn eftir að hafa verið með tónleika í Miami blöstu við honum hundruð skilaboða sem krotuð höfðu verið á bílinn hans. „Kónginum“ var ekki skemmt þegar hann sá þessa eyðileggingu. Já, þetta var eins og veggjakrot á subbulegu skemmtistaðarsalerni!

image

Elvis ók útkrotuðu ökutækinu í næsta Lincoln umboð og skipti á krassinu og 1956 árgerðinni af Continental Mark II. Kaupsamningurinn er enn til og hann má sjá á sýningunni við hlið bílsins.

image

Elvis fékk 7100 dollara fyrir útkrotaða bílinn og borgaði þá tæpu 3000 dali sem upp á vantaði. Bílaumboðið (Miami Mercury Lincoln) geymdi samninginn vandlega og notaði síðar við markaðssetningu.

image

Elvis ók bílnum frá Miami til Memphis, enda naut hann þess að aka. Það þarf nú ekkert að útskýra fyrir okkur, er það nokkuð?

Starfsfólkið á Graceland, búgarði Elvis, gætti þess að hafa bíla kóngsins klára til akstur fyrir framan húsið og voru lyklarnir iðulega í bílunum því enginn vissi hvenær hann færi í næsta bíltúr.  

image

„Þannig vissu aðdáendur hans hvenær Elvis var heima,“ sagði Angie Marchese í samtali við Fox News. „Ef bílarnir voru fyrir framan var kóngurinn heima. Ef bílunum var lagt aftan við hús þá var næsta víst að hann væri á tónleikaferðalagi.“

Fleiri greinar tengdar Elvis Presley:

...og ein alveg ótengd honum: 

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is