Kalifornía vill sekta háværa bíla með hljóðskynjandi umferðarmyndavélum
Verði þetta samþykkt munu sex borgir taka þátt í viðleitni áætlunarinnar til að stöðva hávaðamengun.
Samkvæmt frétt á bílavefnum Jalopnik í Bandaríkjunum, gera yfirvöld í Kaliforníu víðtækari atlögu að of háværum bílum í umferðinni.
Bílaáhugamenn voru brjálaðir árið 2019 þegar frumvarp Kaliforníu númer 1824 tók gildi.
Lögin voru uppfærsla á reglugerðum ríkisins um hversu mikinn hávaða ökutæki getur gefið frá sér og hvernig lögregla gæti framfylgt þeim mörkum.
Fólksbílar 95 db – mótorhjól 80 db
Áður en einhver verður brjálaður er mikilvægt að benda á að þetta frumvarp breytir á engan hátt sjálfum hávaðamörkunum, sem hafa verið í gildi í mörg ár: 95 desibel er hámark fyrir fólksbíla og 80dB hámark fyrir mótorhjól. Þetta frumvarp veitir löggæslu einfaldlega nýja, sjálfvirka leið til að refsa ökumönnum sem fara yfir hávaðamörk.
Verði frumvarpið samþykkt munu sex borgir í Kaliforníu taka þátt í prufuáætlun sem hefst 1. janúar 2023 og stendur til 31. desember 2027.
Borgirnar myndu fá það sem lýst er sem „hljóðvirku tæki“ sem, samkvæmt frumvarpinu, mun verða virkt „þegar hljóðstigið hefur farið yfir lögleg hljóðmörk og er hannað til að fá skýra mynd af númeraplötu ökutækis.“
Sveigjanlegt gagnvart ökumönnum
Allt frumvarpið er í raun skrifað til að vera frekar sveigjanlegt gagnvart ökumönnum. Borgir verða að móta greiðsluáætlun fyrir þá sem hafa ekki efni á að greiða sektirnar, með frestunarmöguleikum og undanþágum í boði.
Yfirvöld í Kaliforníu hafa ekki enn gefið upp hvernig myndavélarnar greini hvaða bíll eða mótorhjól býr til hávaðann.
Frumvarpið krefst enn undirskriftar Gavin Newsom ríkisstjóra áður en það tekur gildi. Tæknilegum upplýsingum - til dæmis hvernig myndavél getur komist að því hvaða farartæki á fjölmennri götu er uppspretta hávaðans - hefur ekki verið deilt með almenningi.
(fréttir á vef Jalopnik / Autoweek)
Aðrar umfjallanir
Jafnvel þótt þeir misskilji skilgreininguna á hestöflum, þá geta flestir náð skilningi á þessu hugtaki. Þó að þeir beiti...
Euro NCAP hefur nýlega birt niðurstöður úr öryggisprófunum fyrir hinn nýja Volkswagen ID. Buzz...
Aehra frá Ítalíu er nýr rafbílaframleiðandi sem segist ætla að gera allt betur en rótgrónir bílaframleiðendur...