Sumarhátíð Heklu
Við litum við í Heklu og BL í gær en þar var hátíðarstemning og boðið upp á grillaðar pulsur og gos.
Það viðraði aldeilis vel í gær til bílaskoðunar. Hekla hélt upp á góða veðrið með stórsýningu á nýjum bílum en þeir sýndu glænýjan VW Taigo sem er ansi huggulegur SUV/Krossover á milli T-Cross og T-Roc. Hekla sýndi einnig hinn nýja ID.5 sem er glæsilegur í alla staði. Við hjá Bílablogg.is eigum eftir að prófa hann fyrir ykkur og hlakkar til þess verkefnis.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223207_1501974116139000694_6849111648776816.jpg)
Það var sumarstemning í Heklu.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223209_5822377907162471260_6849113938349271.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223211_6369122679098193092_6849116073990527.jpg)
VW ID.5 er nýr rafbíll í ID línu VW. Flottur bíll sem hægt er að fá með fjórhjóladrifi.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223213_3644926646910227312_6849117926626399.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223215_3982233061176511642_6849120094855806.jpg)
Það var spenningur fyrir nýjum ID.Buzz sem kynntur verður í haust.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223217_5148030761384926908_6849122153476580.jpg)
Hér er einn gamall en góður sem skipar heiðursess í Heklu salnum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223218_2255431794814811587_6849123533941799.jpg)
Það var opið í öllum sölum Heklu í gær og þar var margt um manninn enda bílasýningar eitt af því skemmtilegra að kíkja á í sumarblíðunni.
Á sýningunni mátti einnig sjá fjölda Audi og Skoda gerða.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223220_8845751324747049354_6849125008270491.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223222_4634348333045553071_6849126920731640.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223223_8342672350344414637_6849128445277022.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223225_4539184187343096437_6849130295958538.jpg)
VW ID.5 er glæsilegur bíll.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223227_7971401647247900131_6849132097763172.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223229_3115776410682518358_6849133917575018.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223231_2118766333224420671_6849135711942476.jpg)
VW Taigo er nýr meðlimur VW fjölskyldunnar.
Sumarhátíð BL
Við Sævarhöfðann var hátíðarstemning en þeir hjá BL frumsýndu tvo nýja bíla. Dacia Jogger er nýr bíll sem tekur allt að sex farþegum og ökumann.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223233_6757657343762694721_6849137661958812.jpg)
Dacia Jogger er sérlega huggulegur og rúmgóður fjölskyldubíll.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223234_2826202908509843965_6849139456984938.jpg)
Hér er splunkunýr bíll frá MG, MG5. Þetta er 100% rafmagnaður skutbíll.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223236_3869277733814383852_6849141238230363.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223238_5248342853966053951_6849142737119976.jpg)
Sætin í Dacia Jogger eru alvöru - gott að setjast í sæti sem halda vel við læri og ná framundir hnésbætur.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223240_8492024397512183085_6849144893468588.jpg)
Það var fjör við grillið.
Sérlega rúmgóður og flottur bíll. Þá sýndu þeir einnig glænýjan rafbíl frá MG – en það er nýr MG5, skutbíll sem hentar án efa mörgum en sérlega þó fjölskyldufólki.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223242_1040301738215839519_6849146699763068.jpg)
Dacia Jogger er boðinn með auka sætaröð og getur því tekið sjö manns í heildina.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223244_4252638845485060521_6849148757707556.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223245_3875907783102349372_6849150570510413.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223248_6682071979460283834_6849152632740596.jpg)
Nissan Leaf hefur verið einn vinsælast rafbíll á Íslandi um árabil.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223249_4810475095325050281_6849154515428485.jpg)
Ágætis farangursrými í MG5 skutbílnum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223252_1649075404854863477_6849156659590335.jpg)
Hér er einn áhugsamur gestur að skoða MG Marvel. Flottur bíll.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223254_3076022416326931414_6849158576168178.jpg)
Vel skipulagt og huggulegt mælaborð MG5.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223255_5269163522490818873_6849160354359542.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1653223257_2075968694594948449_6849162117823470.jpg)
Hjá Vatt í Skeifunni mátti svo berja augum splunkunýja Maxus bíla frá kínverska bílarisanum Saic. Euniq 5 er glænýr SUV/Krossover með allt að 450 km drægni. Sá er með öllu sem nútímabíllinn er boðinn með í dag. Vatt býður ennig upp á litla sendibíla og stóra sjö sæta fólksbíla.
Myndataka og myndvinnsla: Dawid Galiński.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1644734405_7458653247180887627_1126178174611776.jpg)
Sumarhelgi nokkra 1993 var söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir gestur Michaels Jackson á búgarði hans Neverland. Einkabílstjóri Jackson sótti Önnu Mjöll heim til hennar í Los Angeles á hvítri limúsínu en á leiðinni á búgarðinn bilaði limúsínan. Ævintýrið er byrjað, lesendur góðir!
![](https://img.bilaskra.is/images/1652287207_5417645676710207603_5913112099310541.jpg)
Samtals er smíðaður á ári hverju álitlegur fjöldi bíla í heiminum. Stóru „risarnir" bandarísku hafa þegar skilað...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612439164_3528594762172747153_586048467000.jpg)
Jarðolíurisinn Ineos Group tekur höndum saman við Hyundai Motor í því skyni að veita bílum sem nota vetni sem eldsneyti þá uppörvun sem þeir þurfa til að verða almennari...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612439183_2973946948498292348_605185601000.jpg)
Brimborg býður nú alla nýja Peugeot bíla með víðtækri 7 ára ábyrgð auk 8 ára ábyrgðar á drifrafhlöðu rafbíla...