Gamlar torfærumyndir eru eins áhugaverðar og aðrar. Það væri synd og skömm að birta þær ekki en þessar tók undirrituð á Blönduósi 2019 og var mikið um dýrðir eins og alla jafna í hinni rammíslensku torfæru.
Fyrir keppnina á Blönduósi 2019, árla morguns.
Ef svona „myndasýning“ mælist vel fyrir þá á undirrituð nokkuð bústið myndasafn úr torfærunni frá síðustu árum og mætti birta fleira úr því – hvað segja lesendur? Er áhuginn til staðar?
Eins og keppendur magir vita hefur verið auðsótt mál að fá þessar myndir sé áhugi á því. Þetta sport er nefnilega algjörlega stórkostlegt og er hópurinn sem það stundar ekki sérlega stór en með eindæmum skemmtilegur. Þvílíkir karakterar!
Áhorfendur í brekkunni á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar 2019. Gleymdi að mynda áhorfendur á Blönduósi ...
Áhorfendur eru mikilvægur hluti af torfærunni því rétt eins og í Formúlu 1 þá væri sportið nú dapurt ef engir væru áhorfendurnir, ekki satt?
Í stað þess að ég skrifi ógnarlangan texta um allt og ekkert er sennilega best að leyfa myndunum að njóta sín og sjálfsagt er að tjá sig og spyrja í athugasemdum á Facebookþræði færslunnar - hlekkurinn er hér neðst!
Þetta lítur vel út!
En hvað er nú að gerast? Er þetta ekki úr einhverri Marvel-mynd? Sandman ...
Æjæj, já þetta er nú partur af torfærunni líka.
Það var þurrt þennan dag og rykið virtist stundum hafa sjálfstæðan vilja.
Stundum byrja menn ekki alveg eins og þeir hefðu óskað sér:
Og svo er það allt önnur braut og allt upp á við!
Það þarf að berja þessi börð aðeins
Lendingar eru misgóðar. Þessi var, tjah, nokkuð harkaleg.
Gefið í botn til að drífa upp á topp
Ef fartin er ekki nægileg þá tekur þyngdarlögmálið strax í taumana:
Byltunum geta fylgt nokkur vel útilátin högg:
Sem betur fer er fátítt að menn slasist
Upp upp og ofar
Flugmenn eru ekki þeir einu sem taka á loft á sínum farartækjum
En lendingarnar eru sennilega mýkri hjá flugmönnunum, enda eru þeir ekki í torfærum
Flughæðin getur orðið nokkur
Og við vissar aðstæður sést hvað er undir bílnum.
Aðrar umfjallanir
Nýr Polestar Grand Tourer kostar um 21.443 þús. krónur...
Ford mun setja á markað 7 rafbíla í Evrópu, þar á meðal fullrafmagnaða útgáfu af Puma litlum crossover, mest selda fólksbílnum á svæðinu...
Volvo Cars staðfesti að þeir muni smíða lítinn rafbíl, sem verður lykilatriði í viðleitni þess að ná helming af sölu Volvo á heimsvísu...