Salan í Evrópu eftir gerðum, í júlí og fyrstu 7 mánuðina; VW Golf endurheimtir toppsætið
VW hefur þurft að eiga við hugbúnaðarvanda með nýjasta Golf.
Volkswagen Golf náði aftur sæti sem mest seldi bíll Evrópu í júlí eftir að bíllinn missti fyrsta sæti í tvo mánuði á undan til Renault Clio.
Hægt var á afgreiðslum á nýjustu – og áttunda kynslóð Golfs vegna hugbúnaðarvanda. VW neyddist til að stöðva afhendingar á Golf eftir að hafa uppgötvað vandamál í hugbúnaði bílsins sem gerir kleift að hringja í neyðartilvikum.
VW seldi 31.148 eintök af Golf, töluvert fleiri en 24901 eintök af Clio, sem var í fyrsta sætinu næstu tvo mánuði á undan.
Skoda Octavia náði 3. sætinu, síðan fylgdi VW Tiguan í 4. sæti og Peugeot 208 í fimmta sæti.
Octavia var söluhæsta á tékkneska heimamarkaðnum og í Austurríki.
Í Bretlandi tók Ford tvö efstu sætin með Fiesta og síðan Focus. Á Ítalíu voru Fiat Panda og Lancia Ypsilon nr 1 og 2.
Tesla Model 3 var á lista yfir tíu í Noregi nr. 6, sem og Renault Zoe á 8. sæti, Mercedes-Benz EQC á nr. 9. og BMW i3 í 10 sæti.
Golfinn var söluhæsti bíll Evrópu á tímabilinu janúar til júlí og síðan Clio í öðru sæti.
(Reuters / Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Audi ætlar að gefa rafdrifna sportjeppanumAudi sínum e-tron nokkrar uppfærslur á miðju tímabili bílsins til að halda...
Vauxhall sem framleiðir samnefndar bifreiðar og undir merki Opel kynnti nýjan framenda Opel Mokka nýverið...
Sprotafyrirtæki á sviði rafknúinna ökutækja í Bandaríkjunum, Lucid Motors, sem miðar að því að selja fyrstu lúxusgerðina sína, Lucid Air...
Allir sem eldri eru muna vel eftir Datsun-vörumerkinu sem Ingvar Helgason seldi hér á árum áður, en nafnið datt út árið 1983 og Nissan nafnið tekið upp í staðinn. Til stóð að endurlífga vörumerkið en það mistókst og nú kveður Datsun í hinsta sinn.