Teslaeigandi í Alameda í Kaliforníu kom að bílnum sínum og sá að búið var að rispa hann rækilega á báðum hliðum. Maðurinn sem gerði það hefði betur látið það ógert því þar með var hann kominn í laglegt klandur.
Fleira um bófa og ribbalda sem fengu á baukinn:
Aðrar umfjallanir
Á þessum degi árið 1964 var söngvari hljómsveitarinnar Rolling Stones, Mick Jagger, að flýta sér svo hrikalega að hann var tekinn fyrir of hraðan akstur. Þá kom í ljós að hann var á ótryggðum bíl og ekki með ökuskírteinið á sér. Skýring verjanda Jaggers fyrir rétti var áhugaverð.
Þvílík landkynning sem Ísland fær í nýjasta YouTube myndbandi Top Gear! Þetta brakandi ferska myndband á að fjalla um Bentley Flying Spur Hybrid en þáttarstjórnandi er gjörsamlega að tryllast yfir Íslandi og landslaginu þannig að Bentley-inn fer fyrir ofan garð og neðan.
Kona nokkur í Kanada var sögð hafa ekið bílaleigubíl vegalengd sem svarar svo gott sem til ummáls jarðarinnar og það átti hún að hafa afrekað á aðeins þremur dögum. Avis var ekki skemmt og rukkaði konuna um 8.000 dollara. Þá var konunni heldur ekki skemmt.
I8 var fyrsti bíllinn frá BMW með tengitvinnbúnaði. Framleiðsluútgáfan af i8 var kynnt á bílasýningunni í Frankfurt árið 2013 og bíllinn fór í sölu árið 2014...