Þrenna hjá Mitsubishi sem slær enn og aftur í gegn:
Ótrúlegur árangur hjá mest selda bílnum á Íslandi
Ísland í öðru sæti á lista yfir söluhæstu lönd Evrópu á Mitsubishi Eclipse Cross.
Fjórhjóladrifni tengiltvinnbíllinn (PHEV) Mitsubishi Eclipse Cross hefur svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi eins og forveri hans Mitsubishi Outlander.
Þar að auki var salan á Íslandi um 40% hærri en sala á Spáni sem vemir 3 sætið á þessum lista.
Þessi ótrúlegi árangur Íslands hefur vakið verðskuldaða athygli og nýverið barst Heklu bréf frá framkvæmdastjóra Evrópumarkaða Mitsubishi Motors þar sem hann þakkar persónulega fyrir frábæran árangur Mitsubishi á Íslandi.
„Það er einnig gaman að segja frá því að markaðsefnið sem við unnum fyrir Eclipse Cross í fallegu Íslensku umhverfi hefur einnig vakið athygli útfyrir landsteinana og höfum við fengið beiðnir frá öðrum mörkuðum að fá að nota efnið“ segir Hjördís María Ólafsdóttir markaðsstjóri Heklu.
Mitsubishi er þar að auki lang söluhæsta vörumerkið á Íslandi í tengiltvinnbílum (PHEV) en Eclipse Cross er með rúmlega 250% fleiri nýskráningar á árinu en Hyundai Tucson sem er sá tengiltvinnbíll sem næstur kemur í röðinni með 256 nýskráningar það sem af er ári.
Aðrar umfjallanir
Þegar bílbelti komu, t.d. í Ford Mustang 1966, voru þau í ætt við beltin sem flugfarþegar spenna á sig. Ekki leist öllum vel á og fólk skar einfaldlega á beltin og losaði sig við „þennan óþægilega“ búnað. Auðvitað ekki allir en einhverjir. Svo komu sjálfvirku beltin. Muna lesendur eftir þeim?
Í dag var safnið opnað á ný eftir gagngerar endurbætur. Nýir sýningargripir og þemasýniningin "The Vision Realized" 60 year of Mid_Engine Corvette Design var...
Volkswagen hefur farið sér hægt varðandi „alvöru“ torfærubíla, en þó hafa öðru hvoru borist fréttir af því að þar á bæ...
Tvö hugmyndamótorhjólin sem Ducati var búinn að láta vita af í október 2019 voru afhjúpuð á EICMA sýningunni 2019 sem fram fer í útjaðri Mílanó á Ítalíu...