Sjálfvirku öryggisbeltin: Hvað klikkaði?
Þegar bílbelti komu, t.d. í Ford Mustang 1966, voru þau í ætt við beltin sem flugfarþegar spenna á sig. Ekki leist öllum vel á og fólk skar einfaldlega á beltin og losaði sig við „þennan óþægilega“ búnað. Auðvitað ekki allir en einhverjir. Svo komu sjálfvirku beltin. Muna lesendur eftir þeim?
Eftir því sem kemur fram í meðfylgjandi myndbandi þá var það Volkswagen sem setti sjálfvirkan öryggisbeltabúnað í bíl á undan öðrum bílaframleiðendum. Það var árið 1975 og bíllinn var VW Golf. Búnaðurinn einfaldlega setti fólk í belti og ekkert múður.
Aðrir framleiðendur fylgdu í kjölfarið og en svo var dálítið sem kom í bíla sem breytti ýmsu.
Aðrar umfjallanir
Bjór og akstur er eitthvað sem fer alls ekki saman. Um það verður ekki deilt. Sjáið bara hvað gerðist áðan:
Cadillac er á leiðinni í rafmagnið… en fyrir þá sem langar í einn slíkan og eru enn þá spenntir fyrir því núna, þá verða að halda þeirri spennu í tvö ár í viðbót, segir...
Evrópska AutoBest dómnefndin valdi enga rafbíla í úrslitin
Subaru var að senda frá sér mynd af þessum nýja skjá í mælaborðinu á 2020-árgerðinni af Subaru Legacy en tilgreindi ekki stærð á skjánum.