60,8% rafbílar og tengiltvinnbílar hjá Brimborg
Gríðarleg aukning hefur orðið í sölu rafbíla (BEV) og tengiltvinn rafbíla (PHEV) hjá Brimborg. Stöðug aukning hefur verið í hlutfalli rafbíla af heildarsölu Brimborgar og náði hlutfallið nýjum hæðum í júlí þegar það fór í 60,8% af seldum fólksbílum. Aukið úrval rafbíla og tengiltvinn rafbíla frá bílaframleiðendum Brimborgar skýrir aukna sölu enda finna sífellt fleiri viðskiptavinir rafmagnaða bíla við hæfi.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612440036_6124273748895612995_1458296314000.jpg)
Citroën ë-C4 100% rafmagn.
Nú og næstu mánuði mun Brimborg geta boðið 24 gerðir rafmagnaðra bíla til sölu á Íslandi frá fimm bílaframleiðendum. Úrvalið er allt frá litlum borgarbílum til stórra, 7-9 manna bíla, fjórhjóladrifinna jeppa og allt þar á milli.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612440037_5180922103870627750_1459400900000.jpg)
Ford Explorer AWD PHEV.
Mikið úrval rafbíla frá fimm bílaframleiðendum
Volvo tengiltvinn jepparnir hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og fljótlega mun Brimborg kynna 100% hreinan rafjeppa frá Volvo. Peugeot sækir mjög hratt inn á markaðinn með hreina rafbíla og tengiltvinnbíla og kynnti nýlega enn einn rafbílinn, e-2008. Ford kynnti nýverið Kuga PHEV tengiltvinnbíl og Ford Explorer PHEV er nýkominn til Íslands og á næsta ári er von á Ford Mustang Mach-E rafbílnum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612440038_2770458798887830754_1460472571000.jpg)
Mazda MX-30 100% rafmagn.
Citroën kemur inn á markaðinn í haust og vetur með C5 Aircross PHEV tengiltvinnbíl og e-C4 100% hreinan rafbíl og Mazda mun einnig kynna 100% hreinan rafbíl, MX-30, í haust.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612440035_1424653087964711338_1457152291000.jpg)
Peugeot e-2008 100% rafmagn.
Rafbílar 75% af sölu Brimborgar um áramót
Brimborg er nú þegar í hópi þriggja stærstu bílaumboðanna þegar kemur að hlutfalli raf- og tengiltvinnbíla af heildarsölu. Með þessu aukna framboði rafmagnaðra bíla reiknar Brimborg með að hlutfall rafmagnaðra bíla af heildarsölu Brimborgar fari yfir 75% um næstu áramót. Auðvelt er að skoða nýja rafbíla og tengiltvinnbíla til sölu í Vefsýningarsal Brimborgar á netinu.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612440039_6773977940489365244_1461945209000.jpg)
Volvo XC40 100% rafmagn.
Í Vefsýningarsalnum er opið allan sólarhringinn og þægilegt að sitja heima og skoða liti, innréttingar og mismunandi búnað og senda síðan rafræna pöntun eða fyrirspurn beint á söluráðgjafa sem svara um hæl.
Í Vefsýningarsalnum er hægt að skoða bíla sem til eru á lager eða bíla sem eru á leiðinni og óska eftir breytingu á lit, innréttingu og búnaði með aðstoð söluráðgjafa.
Á vef Brimborgar er búið að taka saman alla 24 rafbílana og tengiltvinn rafbílana á einn stað hér.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1612442709_3224030220445143932_4131442509000.jpg)
Bílgreinasambandið hefur birt tölur yfir bílasöluna á árinu 2019. Af einstökum tegundum þá er Toyota söluhæst, í öðru sæti er Kia og...
![](https://img.bilaskra.is/images/1658446806_2530327631151783937_12072710656754825.jpg)
Hyundai i10 kom á markað árið 2020. Arftaki hans gæti verið rafknúinn.
![](https://img.bilaskra.is/images/1644388806_2845893867398570045_780579475274485.jpg)
Ofurdriftbíllinn, hinn sérsmíðaði 1.400 hestafla Ford Mustang Mach-E, sem er í eigu Vaughn Gittin Jr., átti að vera hér á landi í kvikmyndatökum síðasta sumar. Hætt var við þau áform eftir Íslandsheimsókn og myndbandið tekið upp í Færeyjum.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612442416_6969675771938903240_3838500040000.jpg)
Hummer, sérstakur, umdeildur og löngu dauður ofurjeppi, snýr aftur á sunnudaginn í Super Bowl auglýsingu sem forsýnir endurkomu sína undir...