Skömmu fyrir 100 ára afmælið var Audrey Matheson spurð hvernig hún vildi fagna tímamótunum. Jú, það var eitt sem hana langaði að gera og það var að fara í bíltúr á rauðri Corvettu. Og að bílnum væri ekið hratt!
Audrey Matheson á 100 ára afmælinu.
„Ekki datt mér í hug að ég myndi lifa svona lengi. Ég er bara steinhissa á þessu,“ sagði hin 100 ára gamla kona, Audrey Matheson frá Phoenix í Arizona, í samtali við fréttamann ABC 15 í síðasta mánuði.
Fjöldi fólks heimsótti Audrey á afmælisdaginn og voru uppákomurnar ýmsar. Beðið var með bíltúrinn þar til í lok veislunnar. Þá komu meðlimir The East Valley Corvettes club akandi á gljáfægðum köggum og var Audrey boðið upp í splunkunýja rauða C8 í eigu manns að nafni Jim Dunkelberger.
„Má bjóða þér í bíltúr,“ spurði Jim og jú, það mátti sannarlega!
Að bíltúr loknum sagði Jim að hin 100 ára Audrey Matheson hefði viljað fara hratt og það var greinilega gaman hjá þeim. Það sést glöggt í myndbandi frá ABC 15 og sjá má hér fyrir neðan.
Annað tengt aldursforsetum og bíladellu:
Aðrar umfjallanir
2023 Ford Super Duty mun koma með tvær nýjar vélar, þráðlausa uppfærslugetu og rafal um borð.
SsangYong hefur sýnt okkur fyrstu myndir af nýjum litlum rafdrifnum „crossover“ sportjeppa
Gleðilegt ár lesendur góðir og þakka ykkur árið sem er nýliðið! Hér kemur það sem ykkur fannst áhugaverðast á vefnum okkar 2021!
FRANKFURT - Volkswagen er að flýta fyrirætlunum um að setja á markað rafknúinn smábíl, sem aðeins notar rafhlöður og sem verður minni en núverandi ID3-rafbíllinn...