Erum við þá að tala um druslur?

Það er oft stutt í druslustimpilinn. Ljótur bíll getur „orðið að druslu“ án þess að nokkuð annað búi þar að baki en að mönnum finnist hann ljótur. Skrítinn getur líka verið drusla – ég þekki dæmi um einn slíkan, Peugeot 1007 til dæmis. Sætisstaða, framleiðsluland, felgustærð, efni í mælaborði, eyðsla og litir geta gert bíla að druslum á einu andartaki.

Til er mælikvarði fyrir druslur. Sá er breskur sem er ekki svo slæmt því Bretar fengju örugglega sinn stað á Guinness-meta listanum í að framleiða druslur, svo þeir ættu hæglega að koma auga á „kostina” sem góð drusla þarf að bera.

Með svipuðum hætti og að meta hversu góður bíllinn er halda menn úti lista yfir hið gagnstæða – þ.e. hversu slæmur kostur hann er. Unninn er listi útfrá 25 fjölmiðlum sem fjalla um bíla og hverskyns umsagnir þeir fá í reynsluakstri. Þetta kallar bretinn Expert Rating Index og má lesa betur um hér.

Þeir sem komust inn á topp 10 lista fyrir árið 2021 í Bretlandi eru þessir:

og um þá segja Bretarnir…

image

Fiat 500L þykir of dýr þrátt fyrir gott pláss og notagildi. Til eru ódýrari kostir á markaðnum sem uppfylla sömu þarfir og þá með betri afkastagetu, betri aksturseiginleika og minna vélarhljóð.

image

Smart EQ for two er lítill og snaggaralegur rafbíll sem gaman er að aka, segja gagnrýnendur. Hann er með alltof litla drægni sem dregur talsvert úr notagildinu.

image

Ford Ecosport þykir af gagnrýnendum einn sá furðulegasti bíll sem Ford hefur komið með á markað hin síðari ár. Aðrir bílar í sama flokki eru einfaldlega flottari, með fleiri kostum og meiri afkastagetu. Bíllinn er hár, virkar mjór og skringilegur.

image

Smart EQ for four virðist fá sömu útreið og litli bróðir; lítil rafhlaða, örlítil farangursgeymsla og þykir ekki góður kostur á móti VW UP og Skoda Citigo (sem reyndar eru sömu bílarnir).

image

MG3 kom fyrst árið 2014. Þrátt fyrir að hafa ekki verið boðinn á Íslandi er bíllinn borinn saman við til dæmis Dacia Sandero. Hann fær slæma dóma gagnrýnenda.

image

MG ZS er lítill bíll sem boðinn er í rafmagnsútgáfu hér á landi. Í Bretlandi er bíllinn með brunavél og á að keppa við bíla eins og hinn ódýra en velmetna Dacia Duster.  

image

Nissan e-NV200 Combi er að mati breskra bílablaðamanna bara drusla. Margir segja hann einfaldlega hræðilegan, óþægilegur að sitja í, drægni lítil, slæmar öryggiseinkunnir enda bara eini bíllinn í þessum flokki bíla í boði í Evrópu.

image

Mitsubishi Shogun sport er ekki í boði hjá okkur hér heima. Hann hefur alveg nokkra góða kosti eins og dráttargetu, flotta torfærueiginleika og rúmgóður er hann – en það er um það bil allt sem jákvætt er hægt að segja um bílinn að mati gagnrýnenda.

image

Mitsubishi ASX hefur verið á markaðnum síðan 2010 og er því elsti gripurinn á þessum lista. Þrátt fyrir fjórar uppfærslur í gegnum tíðina hefur ASX því miður verið undir meðaltalinu í öllum þáttum sem gera bíla að slæmum kosti að mati breskra bílablaðamanna.

image

Mitsubishi Mirage er einnig bíll sem ekki er boðinn á Íslandi en hann rekur lestina á lista yfir verstu kosti í bílakaupum ársins 2021. Þetta grey hefur í áranna rás fengið verstu útreið í reynsluakstri sem sögur fara af en hann er sagður með gamaldags innréttingu, afllaus, leiðinlegur í stýri og alltof mikið veghljóð. 40 svona bílar seldust í Bretlandi árið 2021.

Þessu tengt: 

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is