Dagur 2: 2022 Goodwood Festival of Speed
Upp er runninn annar dagur veislunnar góðu: Goodwood Festival of Speed 2022. Veisluborðin svigna undan kræsingum í formi akstursíþrótta og er tær snilld að geta fylgst með þessu í beinni útsendingu! Hver einasta mínúta hinnar mögnuðu Goodwood Festival of Speed er í beinni útsendingu sem horfa má á hér í gegnum streymi, frá 23. júní - 26. júní.
Veislan
Hér er hægt að sjá meira úrval af mótorsportviðburðum en maður hafði hugmynd um að væri hægt að þjappa saman á einn og sama staðinn. Ofurbílar, rall, hill climb, drift, frumsýningar á bílum og mótorhjólum, flugsýningar og ég veit ekki hvað og hvað!
Fari það hratt þá er nokkuð víst að það sé að finna á Goodwood Festival of Speed.
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
Margir bíleigendur hafa lent í því að bíllinn þeirra hafi setið fastur og spólað og það jafnvel þótt hann hafi verið búinn...
Frumsýningar bílanna í Formúlu 1 eru afstaðnar og prófanir hafnar. Eitthvað eru sumir bílarnir nú öðruvísi en þeir sem liðin sýndu á sínum tíma. Mestu munar á bíl Red Bull.
Framúrstefnulegur matsölustaður Tesla með „bílabíó“ og Supercharger stöð er loksins að verða að veruleika og...
I8 var fyrsti bíllinn frá BMW með tengitvinnbúnaði. Framleiðsluútgáfan af i8 var kynnt á bílasýningunni í Frankfurt árið 2013 og bíllinn fór í sölu árið 2014...