XR2i er góð viðbót við úrvalið í Stóragerði
Í gærkvöldi birti Samgöngusafnið í Stóragerði færslu þess efnis að Ford Fiesta XR2i væri kominn á safnið góða og þar með orðinn hluti af því fíneríi sem tilheyrir GTI/Turbó hluta safnsins. Lítum nánar á þennan rúmlega þrítuga 900 kílóa eðalbíl.
„Samningar náðust með þetta frábæra eintak af Ford Fiesta XR2i. Hann er kominn á sína endastöð á meðal bræðra sinna í GTI / Turbo horninu á safninu. Takk fyrir Marc,“ sagði í færslunni sem Bílablogg fékk leyfi til að birta auk myndanna sem fylgdu.
Ford Fiesta XR2i var framleiddur á árunum 1989 til 1992 og tilheyrir því Mk3 kynslóð Fiesta. Eintakið sem komið er á safnið í Stóragerði er frá árinu 1990 og var bíllinn fluttur inn árið 2017. Hestöflin eru rétt rúmlega 100, vélin 1.6 l. og vegur bíllinn 900 kíló.
Frá fertugsafmælishúllumhæi Ford Fiesta árið 2016. Ljósmynd/media.ford.com
Þeim fer fækkandi víðar en í Bretlandi eins og eðlilegt er og virkilega gaman að fá svona heilt og elegant eintak á safnið. Þó að bíllinn hafi selst grimmt sem leiktæki í kringum 1990 þá verður hann auðvitað ekki notaður sem leiktæki á safninu í Stóragerði – það er nú ekki þannig sem samgönguminjasöfnin virka.
Að hugsa sér hversu mögnuð þessi samgöngusöfn á Íslandi eru! Þetta eru algjörar perlur sem vert er að heimsækja í sumarfríinu. Hér fyrir neðan eru tenglar á nokkur.
Fleira um íslensku bílasöfnin:
Aðrar umfjallanir
Samkvæmt frétt frá Bloomberg lítur út fyrir að Toyota sé stærsti bílaframleiðandi heims þriðja árið í röð, eftir að hafa selt meira en 1 milljón bíla umfram...
Það er auðvitað dýrðarinnar dásemd að vita til þess að til sé eyja, grísk eyja, sem er gjörsamlega laus við mengun frá bílum. En er það alveg í lagi að lögregla á eyju þar sem íbúar eru 300 talsins hafi tvo löggubíla til umráða? Bara smá pæling svona í morgunsárið.
Í júní mánuði voru nýskráðir 390 rafbílar og þar af nýskráði Brimborg 55 Polestar rafbíla sem gerir hann að mest selda rafbílnum í júní með 14,1% markaðshlutdeild...
Þar sem við hjá Bílablogg.is gefum okkur út fyrir að reynsluaka nýjum bílum og segja frá upplifun okkar er gaman að skoða hvernig...