80 einstakir Ferrari óvart „þvegnir“ að innan
Mikill og hátíðlegur hópakstur opinna Ferrari sportbíla hófst formlega í fyrradag, 27. júní, í Maranella á Ítalíu. Um 80 Ferrari Monza SP1 og SP2 taka þátt í Ferrari Cavalcade en ekið er um Ítalíu, Frakkland og Mónakó. Þátttakendur koma víðsvegar að.
Það er víst einstök upplifun að sjá alla fínu opnu sportarana aka saman og fólk eltir hópinn út um allt til að skoða rándýra bílana og taka myndir.
Þetta byrjaði samt á óheppilegu atviki. Já, það má eiginlega segja bæði óheppilegu og óheyrilega klaufalegu atviki.
Þegar til stóð að aka eftir Fiorano kappakstursbrautinni gerði hundleiðinlegt veður.
Fínu bílarnir stóðu úti og þar sem ekkert þak er á bílunum lítur út fyrir að þeir hafi fengið óumbeðinn vatnsþvott. Myndbandið tók mikill „bíla-spottari“. Hann átti auðvitað ekkert að vera að sniglast þarna og má sjá hvar starfsmaður kemur hlaupandi til að banna honum að kvikmynda.
Jæja, vonandi er skaðinn ekki óheyrilegur en ekki lítur þetta vel út…
Fleira um Ferrari:
Aðrar umfjallanir
PARIS - PSA Group mun smíða nýjan DS 4, sem er bíll í minni stærðarflokki, í verksmiðju Opel í Russelsheim, Þýskalandi, samkvæmt frönskum fjölmiðlum...
Æj, þetta er agalegt! Hér er dæmi um bílstjóra sem er svo ferlega lélegur að maður hugsar með sér í upphafi stutts myndbandsins að hlutirnir geti hreinlega ekki versnað. Því miður er það ekki rétt. Þeir versna nefnilega.
Nýr yfirmaður MINI, Stefanie Wurst, hefur staðfest að blæjubíll muni bætast í nýju MINI Cooper línuna - sem á að koma á markað...
Sem hluti af hinum ýmsu upplýsingum sem blaðamenn Autoblog fengu í hendur þegar ný Toyota Supra 2020 GR var kynnt, var frekar ítarleg saga Supra frá fyrstu A40 kynslóðinni að þeirri nýjustu A80