- i3 frá BMW verður skipt út fyrir væntanlegan iX1 jeppling
- Síðasti BMW i3 farinn af færibandinu
BMW hefur staðfest að framleiðslu i3 sé nú lokið en bíllinn var framleiddur í níu ár eða frá 2013. Síðasti i3 rúllaði af færibandi verksmiðjunnar í Leipzig í Þýskalandi, aðeins nokkrum vikum eftir að gerðin fór yfir rúmlega fjórðung milljónar í framleiðslu. Í tilefni af því hafa tíu bílar verið útbúnir af einstakri sérútgáfu sem kallast i3 HomeRun Edition, með „Frozen paint“ áferð vörumerkisins.
Heimurinn fékk fyrst innsýn inn í i3 í hugmyndaheiminn á bílasýningunni í Frankfurt 2011, og þegar framleiðslugerðin kom árið 2013 var hún ótrúlega lík upprunalegu útgáfu sýningarbílsins.
Tvílita lakkið, niðurfelld axlarlína, glerbakhlið og upprétt hlutföll voru á skjön við venjulega BMW hönnun sem kaupendur höfðu vanist. Ein af ástæðunum fyrir framandi útliti var að framleiðandinn kynnti nýja „i“ undirmerki BMW (ásamt i8 sportbílnum).
Síðasti BMW i3 á færibandinu
i3 var byggður á sérsniðnum grunni sem er blanda úr áli, magnesíumi og koltrefjum til að halda þyngd bílsiins í rúmu tonni. Með því að hafa bílinn léttan mátti ná 300 kílómetra drægni í þessum alrafmagnaða bíl.
i3 reyndist vinsæll í neyðarþjónustu á Bretlandi, þar sem lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningamenn notuðu bíl af þessari gerð.
Það er í raun enginn bíll sem kemur í stað i3 en rafmagnsútgáfa af nýja X1 jeppanum gæti tekið við hlutverki þess smáa.
(frétt á vef Auto Express – myndir frá BMW)
Aðrar umfjallanir
Þá er hann kominn í ljós: Ioniq 6. Síðastliðna nótt var allt það helsta opinberað um þennan áhugaverða rafbíl og er fátt annað að gera en ýta á „play“!
Það var búið að tilkynna íbúum við Huntley Street í Darlington með góðum fyrirvara að þann 10. maí yrði gatan malbikuð og voru skilti hér og þar með upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir. Íbúar áttu að færa bílana sína og það gerðu þeir. Allir nema einn. Einn BMW var ekki færður og hvað þá?
Munro Vehicles er sprotafyrirtæki í bílaframleiðslu sem var stofnað árið 2019 í Glasgow á Skotlandi og fyrsta framboð þess, Munro Mark 1...
BERLÍN – framleiðsla Volkswagen í Kína, efld með nýrri verksmiðju í Anhui héraði, mun geta smíðað 1 milljón rafbíla á ári í Kína frá og með 2023, sagði...