Bíll Doktorsins: The Whomobile
Breskir bílar geta, rétt eins og breskur matur, verið óætir. Nei, afsakið öll! Auðvitað átti að standa þarna óútreiknanlegir. Það sama er að segja um farartækin í bresku vísindaskáldskaparþáttunum um Doctor Who. Lítum nánar á The Whomobile.
BBC framleiddi þessa sjónvarpsþætti frá 1963 til 1989. Það voru 26 þáttaraðir sem liðuðust út úr þáttagerðarvélinni, ár eftir ár.
Nú, rétt eins og í matargerðinni þá eru Bretarnir ekki þekktir fyrir að gefast upp þátt útkoman sé kekkjótt og svona mis…já misheppileg. Þannig að þeir héldu áfram. Héldu áfram að kokka upp þætti um Doctor Who, reyndar var hlé frá 1989 til 2005 en þættirnir eru enn framleiddir og voru orðnir 870* talsins í ár.
The Whomobile í raunheimum. Dálítið á skjön, eða eru það kannski allir hinir sem eru tímaskekkja?
Ekki eins vont
Til að allrar sanngirni sé gætt þá hafa þættirnir um tímalávarðinn Doctor Who notið mikilla vinsælda og ekkert rétt að líkja þeim á einn eða annan hátt við það sem úr eldhúsi eyjarskeggja kemur. Síður en svo!
En full ástæða er til að henda gaman að The Whomobile því hann er sko algjört met! Hér er myndband frá því bíllinn var kynntur í sjónvarpssal BBC í nóvember 1973 og minnir klippan okkur á hversu miklum framförum menn hafa víða tekið í framsetningu á sjónvarpsefni síðan þá.
Maður á alltaf að finna jákvæðu hliðarnar og draga þær fram, ekki satt?
Fleira sem kemur „breskt“ fyrir sjónir:
Aðrar umfjallanir
Á dögunum átti blaðamaður Bílabloggs þess kost að heimsækja alvöru mótorhjólasýningu á Englandi, „The International Classic MotorCycle Show“...
1965 datt mönnum í hug að finna upp hjólið – aftur. Það sást bara miklu betur á mælaborðið, þú gast slakað á við aksturinn...
Nissan 370 Z Twin túrbó (rúm 700 hö) og Tesla Model S Plaid (rúm 1000 hö) fóru í spyrnu. Teslan hafði betur í þeirri fyrri en svo… Já, framhaldið er hér:
Renault er að reyna að endurræsa viðræður um samruna við Nissan innan 12 mánaða sem fyrsta skrefið í átt að því að stofna stærri samsteypu bílaframleiðenda